Þegar virðist sjá fyrir endann á nýbyggingu við Skjólgarð og endurbótum á núverandi húsnæði heimilisins er eðlilegt og þarft að varpa fram spurningunni sem er yfirskrift þessa greinarkorns. Til þess að svara henni þarf m.a. að átta sig á hver er staða húsnæðismála eldra fólks í Sveitarfélaginu Hornafirði. Hver er og  verður þörf fyrir hentugt húsnæði fyrir þennan hóp fólks í fyrirsjáanlegri framtíð? Hér á eftir er gerð tilraun til þess að varpa ljósi á þetta og kastað fram hugmyndum um hvernig megi bregðast við líklegri þróun.

Auglýsing

Þegar rætt er um húsnæði fyrir eldra fólk er gjarnan átt við húsnæði fyrir fólk sem kýs eða þarf „að minnka við sig“ eins og sagt er. Þarfir og langanir þessa hóps fólks eru mjög mismunandi. Sumir vilja 2-3 herbergja íbúðir til leigu eða eignar, aðrir kjósa þjónustuíbúðir og svo eru þeir sem þurfa húsnæði á hjúkrunarheimili. Reynslan sýnir að fólk vill gjarnan að áðurnefnt húsnæði sé hluti af eða í nágrenni við svokallaða velferðarkjarna þar sem í boði er ýmis þjónusta og fjölbreytt félagsstarf m.m.

Í Sveitarfélaginu Hornafirði  er mestur hluti húsnæðis sem ætlaður er eldra fólki á svokölluðum Heilsugæslureit. Á reitnum eru eignar- og leiguíbúðir þar er einnig hjúkrunarheimilið Skjólgarður. Ekki eru þjónustuíbúðir í Sveitarfélaginu. Eignar- og leiguíbúðir á Heilsugæslureitnum sem bjóðast til sölu eða leigu ganga hratt út. Þetta bendir tvímælalaust til þess að markaður sé fyrir nýjar íbúðir fyrir eldra fólk á og í nágrenni við svæðið. Auk þess liggur fyrir að þörf er á byggingu þjónustuíbúða. Þegar hjúkrunarheimilið Skjólgarður verður að fullu endurbyggt (líklega í lok ársins 2027) verða þar samtals 33 rými.  Í nýbyggingunni; 20 hjúkrunarrými, í endurbyggðu núverandi húsnæði Skjólgarðs; 10 hjúkrunarrými, 2 sjúkrarými og 1 hvíldarrými. Samkvæmt fyrirliggjandi spá um íbúafjölda í Sveitarfélaginu Hornafirði og viðmiðum stjórnvalda um hlutfall íbúa, sem þurfa vist á hjúkrunarheimilum, eru líkur til að á árunum 2033-2035 verði þau 30 hjúkrunarrými sem bjóðast í endurbyggðum Skjólgarði fullnýtt af heimamönnum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um þróun næstu áratuga er líklegt að fjölgi um 8-10 manns sem þurfa vist á hjúkrunarheimili í Sveitarfélaginu á hverju 10 ára tímabili.

Með setningu laga hefur Alþingi falið framkvæmdarvaldinu  (ríkisstjórn  og sveitarstjórnum) að hafa forgöngu um að fullnægjandi framboð sé af áðurnefndu húsnæði á hverjum tíma og á hverjum stað. Í ljósi þessa og þess að fari fram sem horfir, eru innan við 10 ár þar til skortur verður á hjúkrunarrýmum í Sveitarfélaginu Hornafirði, hlýtur að verða eitt af fyrstu verkefnum nýrrar sveitarstjórnar að huga að þessum málum. Reynslan sýnir að verkefni sem þessi taka langan tíma í framkvæmd, fyrsti samningur um stækkun Skjólgarðs var gerður árið 2001 og verkefnið  verður vonandi fullunnið í lok árs 2027 eða 26 árum síðar. Í fyrstu drögum af skipulagi fyrir Heilsugæslureitinn var gert ráð fyrir að starfsemi heilsugæslu ásamt starfsemi  hjúkrunar- og dvalarheimilis hefði forgang um nýtingu reitsins. Með deiliskipulögum seinni ára var horfið frá þessu skilyrði og þess vegna er mun flóknara að bregðast við fyrirsjáanlegum skorti  hjúkrunarrýma á Skjólgarði en væri ef framsýni hefði verið við stjórnvölinn hjá skipulagsyfirvöldum. Þessar aðstæður krefjast þess að leitað sé dyrum og dyngjum að lausnum sem gagnast a.m.k. til ársins 2050. Hér á eftir set ég fram eina hugmynd að lausn á fyrirsjáanlegum fyrrnefndum húsnæðisvanda.

Hér má sjá hugmynd Ara um staðsetningu á hugsanlegu húsnæði

Byggt verði a.m.k. 3-hæða hús u.þ.b. 1000 m2 að grunnfleti norðan við Heilsugæslustöðina þar sem nú er þyrlupallur. Starfsemi Heilsugæslunnar flyst úr núverandi húsi hennar á neðstu hæð þessarar nýju byggingar. Núverandi húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar verði notað til stækkunar Skjólgarðs og því breytt i hjúkrunarrými. Verði þörf fyrir frekari stækkun Skjólgarðs í framtíðinni er mögulegt að byggja við vesturenda hússins. Á annar hæð nýbyggingarinnar verði þjónustuíbúðir og leiguíbúðir fyrir eldra fólk og á þeirri þriðju eignar-/leiguíbúður.

Höfn í mars 2026
Ari Jónsson

Tags: