Það var sáttur hópur þrautseigra kennara sem hóf skólaárið hjá Fjallaskóla Íslands í Hofgarði síðastliðinn ágúst. Eins og flest sem búa hér undir Vatnajökli þekkja, var fjallamennskunám FAS í erfiðri stöðu sem leiddi að lokum til þess að hópur vaskra kennara sem öll höfðu kennt við fjallamennskunámið, stofnaði Fjallaskóla Íslands. Markmiðið var að halda náminu hér í sveitarfélaginu og halda samfellu í kennslunni. Eins og í mörgum stórum verkefnum, kom stærri hópur að því að þetta varð að lokum að veruleika, en í þessu verkefni fannst samtakamátturinn sem býr í samfélaginu okkar. Sveitarstjórnin átti ríkan þátt í stofnun skólans sem og fyrirtæki sem starfa innan Vatnajökulsþjóðgarðs en 10 fyrirtæki lögðu til stofnfé skólans.

Það var ljóst að samfélagið hér var sammála um mikilvægi þess að námið myndi haldast hér undir Vatnajökli.
Skólinn er óhagnaðardrifin sjálfseignarstofnun og skólastjóri skólans er fyrrum verkefnastjóri fjallamennskunámsins, Smári Stefánsson. Í stjórn skólans sitja Árni Stefán Haldorsen, Erla Guðný Helgadóttir, Eyrún Fríða Árnadóttir, Helga Árnadóttir og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir. Stofnendur skólans eru Fallastakkur ehf., Glacier Adventure ehf., Glacier Travel ehf., Glacier Trips ehf., Heading North ehf., Ice Cave Guides ehf., Jökulsárlón Ferðaþjónusta ehf., Niflheimar ehf., Travelshift ehf. og Tindaborg ehf. Skólinn er skráður til heimilis í Hofgarði og þar hefjast öll námskeið sem kennd eru í Öræfum. Við viljum þakka Áróru skólastjóra í Hofgarði kærlega fyrir að taka vel á móti okkur.

Með breyttu rekstrarfyrirkomulagi gefst skólanum tækifæri til að halda úti fjölbreyttari starfsemi. Skólinn kennir námsbrautirnar sem FAS byggði upp, leiðsögumaður með áherslu á jöklaleiðsögn og leiðsögumaður með áherslu á fjallgönguleiðsögn. Ásamt þeim, heldur Fjallaskólinn opin námskeið fyrir almenning sem vill auka færni sína á fjöllum og býður t.d. upp á fjallaskíða-, snjóflóða- og klifurnámskeið. Þá gerði Fjallaskólinn samning við Náttúruverndarstofnun um kennslu á landvarðanámskeiði. Það er mjög ánægjulegt að geta boðið upp á nám í landvörslu en staðlotan í náminu er kennd á tveimur af stærstu landvörslustöðvum landsins, Skaftafelli og Jökulsárlóni. Námskeiðið hófst hjá skólanum um miðjan janúar og fer vel af stað en fjöldi sérfróðra um náttúruvernd og landvörslu koma að kennslunni.

Mynd: Íris Ragnarsdóttir Pedersen

Mynd: Ívar Finnbogason
Það er vert að segja frá því að í sumar gerðust þau merku tíðindi að námsbrautirnar okkar fengust samþykktar af menntamálaráðuneytinu. Það þýðir að námsbrautirnar eru orðnar formlegur hluti af íslenska skólakerfinu sem er stór áfangi fyrir íslenska ferðaþjónustu og ævintýraleiðsögn á Íslandi.
Skólaárið fór af stað með hefðbundnu sniði síðasta haust hjá Fjallaskólanum á klettaklifri á Hnappavöllum, þá gönguferð um Núpstaðaöræfin og að lokum skriðjöklaferðamennsku á skriðjöklunum í Öræfum.
Það er því ekki að ástæðulausu að nám í ævintýraleiðsögn á heima undir Vatnajökli, hér eru einfaldlega bestu og fjölbreyttustu kennsluaðstæður sem bjóðast á Íslandi. Það er ljóst að án velvilja landeigenda og heimamanna gæti námið ekki gengið. Við vonum því að það góða samstarf sem við höfum átt til þessa við fjölda aðila, haldi áfram að blómstra. Við trúum því að námið efli ferðaþjónustu, auki fagmennsku og fjölbreytni sem skapar styrkari stoð til framtíðar. Við viljum þakka öllum þeim sem hafa greitt leið okkar, starfað með skólanum, gefið aðgang að einstakri náttúru og hjálpað okkur með einum eða öðrum hætti, kærlega fyrir. Stuðningurinn skiptir okkur miklu máli.
Við hvetjum áhugasöm að fylgjast með okkur á samfélagsmiðlum undir “Fjallaskóli Íslands”. Opið er fyrir umsóknir á snjóflóðanámskeið skólans og fleiri námskeið munu vera auglýst á næstu vikum. Þá hefjum við umsóknarferlið í nám í ævintýraleiðsögn í mars.

Íris Ragnarsdóttir Pedersen
Fjallskóli Íslands



