Okkar öfluga fólk sem prýðir lista Framsóknar og stuðningsmanna (á myndina vantar
Lars Jóhann Andrésson Imsland og Hauk Inga Einarsson

Framboðslisti Framsóknar og stuðningsmanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí 2026 var samþykktur á vel sóttum félagsfundi miðvikudagskvöldið 25. febrúar sl. Fundurinn bar með sér kraft og skýran vilja til að Framsókn haldi áfram uppbyggilegu starfi í þágu samfélagsins.

Auglýsing

Listinn er skipaður öflugum og fjölbreyttum hópi fólks með mismunandi bakgrunn, reynslu og þekkingu.

Oddviti listans er Hjalti Þór Vignisson, framkvæmdastjóri, Ingibjörg Sveinsdóttir, atvinnurekandi og grunnskólakennari er í öðru sæti og Björgvin Óskar Sigurjónsson, byggingatæknifræðingur og bæjarfulltrúi í þriðja sæti. Í fjórða sæti er Kolbrún Þorbjörg Björnsdóttir, heilsuþjálfi og rekstrarstjóri, og í fimmta sæti Gunnar Ásgeirsson, innkaupastjóri og varabæjarfulltrúi.

Hér fer saman reynsla þeirra sem hafa starfað lengi að sveitarstjórnarmálum og kraftur nýrra frambjóðenda sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Þessi blanda tryggir bæði festu og nýja sýn inn í komandi kjörtímabil.

Á yfirstandandi kjörtímabili hafa bæjarfulltrúar Framsóknar lagt áherslu á ábyrga fjármálastjórn, öfluga innviðauppbyggingu og styrkingu grunnþjónustu við íbúa. Unnið hefur verið markvisst að uppbyggingu skóla- og frístundamála, auk eflingar velferðarþjónustu. Þá hefur verið lögð áhersla á að styrkja atvinnulíf, skapa skilyrði fyrir fjölbreyttari störf og tryggja að sveitarfélagið sé áfram eftirsóknarverður staður til búsetu og atvinnuuppbyggingar.

Áhersla hefur verið lögð á skipulagsmál og framtíðarsýn í uppbyggingu, meðal annars með heildarendurskoðun aðalskipulags. Þá hafa bæjarfulltrúar Framsóknar lagt sig fram við að veita meirihluta bæjarstjórnar aðhald meðal annars til að tryggja vandaða og skilvirka stjórnsýslu.

Samþykkt framboðslistans er upptaktur í undirbúningi kosninganna í vor. Frambjóðendur lýsa yfir þakklæti fyrir það traust sem þeim er sýnt og þau hlakka til að taka þátt í opnu og heiðarlegu samtali við íbúa á komandi mánuðum. Markmiðið er skýrt: að byggja áfram á þeim grunni sem lagður hefur verið, nýta reynsluna sem safnast hefur og um leið stíga ákveðin skref fram á við í takt við þarfir samfélagsins.

Með sterkum lista, sameiginlegri sýn og skýrum áherslum er horft til komandi kjörtímabils með metnað, ábyrgð og bjartsýni fyrir framtíð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Stjórn Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga

Tags: