Eruð þið ekki farin að hlakka til? Við í humarhátíðarnefndinni erum allavegana farin að hlakka mikið til Humarhátíðarinnar 2026 dagana 26.-28. júní! 

Auglýsing

Humarhátíðarnefnd 2026 hefur tekið til starfa og er undirbúningurinn kominn á fullt. Við erum metnaðarfull nefnd og stefnum á glæsilega hátíð!

Hátíðin skipuleggur sig hinsvegar ekki sjálf, það þarf samhent átak frá sjálfboðaliðum í hátíðarnefndinni, fyrirtækjum og íþróttadeildum sem og þátttöku almenning yfir sjálfa hátíðina. 

Við erum byrjuð að senda út tölvupósta á fyrirtæki í von um styrki til þess að fjármagna hátíðina að fullu og vonumst við til þess að styrkbeiðnir falli í góðan jarðveg, án fjárstuðnings frá fyrirtækjum væri ekki hægt að gera hátíðina jafn glæsilega og raun ber vitni. 

Við viljum heyra frá ykkur kæru íbúar!

  • Ertu í hljómsveit eða upprennandi söngstjarna?
  • Sendu okkur tölvupóst og við reynum að búa til  pláss í dagskránni. 
  • Ertu með hugmynd að viðburði sem þú telur að eigi erindi á hátíðina? Sendu okkur tölvupóst, við gætum kannski aðstoðað þig við að fullvinna hugmyndina og fundið henni pláss í dagskránni!
  • Viltu skipuleggja loppumarkað, pop-up leikvöll eða halda utan um götuskreytingarnar? Sendu okkur tölvupóst!

Netfangið er: humarhatidarnefnd@gmail.com 

Þú finnur okkur líka á Facebook og Instagram.

Síðast en ekki síst þá vantar okkur fleiri hendur í humarhátíðarnefndina, margar hendur vinna létt verk! Endilega hafið samband. Það er í alvöru ótrúlega gaman að skipuleggja bæjarhátíð! 

Bestu kveðjur, 
Humarhátíðarnefnd 2026

Tags: