Að tilefni komandi sveitarstjórnarkosninga mun Ungmennaráð Hornafjarðar standa fyrir skuggakosningum þetta árið og eru öll ungmenni sem ekki hafa náð 18 ára aldri og eru fædd frá 2008–2012 hvött til þess að taka þátt.

Auglýsing

Skuggakosningar eru frábært tækifæri fyrir ungt fólk til að prófa hvernig það er að kjósa, kynnast framboðunum og átta sig á því hvernig lýðræðið virkar í raun. Hér fáum við að láta rödd okkar heyrast – og hún skiptir máli.

Ungmennaráð 2025-2026, sjá lista yfir hverjir sitja í ráðinu neðst í fréttinni

Fimmtudaginn 7. maí verður haldinn skemmtilegur viðburður þar sem frambjóðendur mæta og hitta ungmenni í svokölluðu „speed dating“ formi. Þar gefst okkur tækifæri til að spyrja spurninga, heyra ólíkar skoðanir og eiga beint samtal við þau sem bjóða sig fram. Viðburðurinn fer fram milli kl. 12:30 og 13:45 og er frábær leið til að kynna sér málin á einfaldan og skemmtilegan hátt.

Kjördagar verða svo tveir: 12. maí í FAS og 13. maí í grunnskólanum. Einnig verður opinn viðburður í Sindrabæ að kvöldi 13. maí þar sem hægt verður að kjósa fyrir þau sem komust ekki fyrr – til dæmis ungt fólk í atvinnulífinu.

Kosningarnar eru settar upp eins og alvöru kosningar með kjörseðlum, kjörkassa og kjörskrá, sem gerir upplifunina bæði raunverulega og skemmtilega. Niðurstöðurnar eru ekki bindandi, en þær gefa mikilvæga mynd af skoðunum unga fólksins í samfélaginu.

Þetta er líka frábært tækifæri fyrir frambjóðendur til að hitta ungmenni, hlusta á okkur og eiga samtal. Við höfum skoðanir, hugmyndir og framtíðarsýn – og viljum fá að taka þátt.

Við hvetjum öll ungmenni til að mæta, taka þátt og láta rödd sína heyrast. Lýðræðið byrjar hjá okkur!

Ungmennaráð Hornafjarðar

Í ungmennaráði 2025-2026 sitja:
Adam Bjarni Jónsson – f.h. Grunnskóla Hornafjarðar
Birta Ósk Sigbjörnsdóttir – f.h. FAS
Björg Kristjánsdóttir – f.h. Grunnskóla Hornafjarðar
Kristján Reynir Ívarsson – f.h. FAS
Theódór Árni Stefánsson – f.h. Grunnskóla Hornafjarðar
Selma Ýr Ívarsdóttir – fulltrúi atvinnulífsins
Sindri Sigurjón Einarsson – f.h. Umf. Sindra
Sigurður Gunnlaugsson – f.h. FAS
Sunna Dís Birgisdóttir – f.h. Þrykkjunnar

Sjá nánari upplýsingar um ráðið á vef sveitarfélagsins.

Tags: