Veturinn hjá Tónskólanum hefur verið viðburðaríkur og skemmtilegur. Nýuppgert húsnæði hefur veitt nemendum og starfsfólki mikla ánægju og aðstaðan öll til fyrirmyndar. Eins og áður hefur komið fram, þá seinkaði uppsetning á sviðsbúnaði vegna kærumála en nú erum við lögð af stað með þann hluta og reiknum með að ljós, hljóð, og tjöld verði tilbúin í sumar.

Nótan er uppskeruhátíð tónlistarskólanna sem haldin var 18. apríl. Fyrirkomulagið í ár voru tónleikar þar sem nemendur frá öllum tónlistarskólum á Austurlandi komu saman í Miklagarði á Vopnafirði og héldu tónleika. Héðan fóru þrjár stúlkur úr 6. bekk og spiluðu hver sitt lagið og eitt lag saman. Þær stóðu sig með stakri prýði og voru okkur til sóma.
Framundan eru skólalokin og ætlum við að vera með tvenna tónleika núna í maí. Sjá auglýsingu í blaðinu. Þar koma fram nemendur með hljóðfærin sín og svo verða söngtónleikar með nemendum þar sem lög Magnúsar Eiríkssonar verða í aðalhlutverki. Þessir tveir tónleikar eru okkar vortónleikar og lokahnykkurinn í vetrarstarfinu. Öll eru velkomin sem vilja. Skólaslit Tónskólans verða þriðjudaginn 26. maí kl. 17.00




