FAS hóf starfsemi árið 1987 og fyrstu árin voru nemendur útskrifaðir frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Árið 1997 fékk skólinn leyfi frá ráðuneytinu til að útskrifa stúdenta og hefur nú útskrifað nemendur í tæplega þrjá áratugi, bæði af stúdentsbrautum og eins úr ýmiss konar starfsnámi. Það eru fjöldamargir í samfélaginu okkar sem eiga minningar um að hafa farið í FAS og útskrifast þaðan. Á velflestum vinnustöðum í sveitarfélaginu starfar fólk sem undirbjó sig fyrir frekara nám í FAS. Okkur finnst alltaf jafn frábært þegar unga fólkið okkar snýr heim aftur og velur að búa hér.

Auglýsing

Við hugsum oft til fyrrverandi nemenda okkar og finnst gaman að heyra hvað er verið að fást við í dag. Margir búa hér, aðrir eru vítt og breitt um landið og einhverjir búa jafnvel erlendis og eru í framhaldsnámi eða í vinnu.

Við ákváðum að taka hús á fyrrverandi nemendum okkar og athuga hvað þau eru að fást við í dag. 


BIRGIR SIGURÐSSON

Hvað er verið að brasa í dag?
Ég heiti Birgir Sigurðsson og var á náttúru- og raunvísindabraut í FAS frá 2018-2021. Ég var einnig skráður á fjallamennskubraut í FAS. Eftir útskrift lagði ég stund á nám í hugbúnaðarverkfræði hjá HÍ og lauk B.S. prófi vorið 2025.

Núna starfa ég sem verktaki hjá tveimur fyrirtækjum í því sem heitir á ensku „BI engineer“ en þetta er forritunarvinna. Ég er gjaldkeri fyrir RVKHEMA sem er íþróttafélag og kenni á haustönnum tölvunarfræði við Háskóla Íslands.

Hvernig var vistin í FAS?
Þegar ég var í FAS þá fannst mér skemmtilegt að námið var að mestu leyti í mínum höndum og ég vissi hvenær ég átti að læra í hverju fagi fyrir sig. Þetta kenndi mér að gera tímaáætlanir sem hefur hentað mér vel, sérstaklega í háskólanámi.

Hvernig hefur veran í FAS nýst þér í frekara námi?
Á meðan ég var í námi við FAS var markmiðið að undirbúa nemendur fyrir háskólanám og það var gert með því að setja námið í okkar hendur. Þetta reyndist mér mjög vel þegar ég byrjaði í Háskóla Íslands. Þar er námið í höndum nemenda og þeir bera ábyrgð á því að verkefni séu unnin.

Í FAS lærði ég að tímasetja mig og það hjálpaði mér mikið á meðan ég var í námi og gerði mér kleift að skipuleggja vikuna mína og hafa yfirlit yfir hvenær ég ætlaði að vera búinn að klára ákveðna hluti og hvenær ég þurfti að vinna í þeim. Nú hef ég verið dæmatímakennari í þrjú ár get ég sagt að þetta er eiginleiki sem vantar að kenna mörgum nemendum sem koma frá öðrum skólum.

Hverjir eru kostir skólans?
Kostirnir við FAS er að þar er hægt að fá undirbúning fyrir nám á háskólastigi fyrir þá sem stefna á slíkt nám. Ég var líka skráður á fjallamennskubrautina í FAS og mér fannst það frábært að geta sameinað námið og útivist. Um leið gafst nemendum kostur á að undirbúa sig undir frekara nám í fjallamennsku, jafnvel á háskólastigi.

Þá fannst mér kostur  að bókasafnið í Nýheimum er frekar stórt og það hjálpar þegar þarf að leita heimilda.

Hverjir eru ókostir við svona lítinn skóla?
Það er aðallega bara einn stór ókostur og það er staðsetningin. Höfn er landfræðilega „einangrað“ svæði sem gerir það að verkum að það oft er erfitt að fá kennara til að kenna sérgeinar og stundum verður að taka þær í fjarnámi t.d. forritun. En þetta á við fleiri smáa bæi hér á landi.


Hjördís Skírnisdóttir
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Tags: