
Tónlistin gerir menn glaða
og gefur á báðar hendur.
Tónlist í taktbundnum hraða
tindrar um ómælis lendur.
Tónlist á róandi rökin
á raunatímum að sefa.
Tónlist á næmustu tökin
á tregastundum að gefa.
Hj. Þ
Með þessum orðum ætlum við í Gleðigjöfum að halda söngskemmtun í Hafnarkirkju 10. maí n.k. klukkan 17:00 Efnisskráin er fjölbreytt og skemmtileg. Stjórnandi er Guðlaug Hestnes og meðleikarar eru Gunnar Ásgeirsson á píanó og Einar Sigjónsson á harmonikku. Aðgangseyrir er 3000 krónur.
Verið velkomin



