Miðvikudaginn 8. apríl stóð velferðarsvið Hornafjarðar og aðstandendahópurinn Gott bakland fyrir viðburðinum Gott Geð. Á samkomunni voru erindi frá Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur formanni SÁTT, Nínu Eck leiðtoga jafningja á LSH, og Freymari Gauta Marinossyni stofnanda Trausts Kjarna. Öll lögðu þau áherslu á jafningjastuðning og mikilvægi þess að stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum í geðheilbrigðismálum.
Á milli erinda var tónlist frá Spaghettibandinu og Spíral. Tónlistin geðbætti góð erindi og viljum við þakka meðlimum þessarra hljómsveita kærlega fyrir þeirra framlag. Sérstakar þakkir viljum við einnig færa þeim sem gáfu sér tíma fyrir uppbrotið. Viðburðurinn, sem var opinn öllum, tókst vel og var fjölmennur. Sérstök áhersla var á að ná til framlínufólks og ná samvinnu milli stofnana. Því teljum við nauðsynlegt að hamra járnið meðan það er heitt og byrja strax á áframhaldandi vinnu í geðheilbrigðismálum. Sveitarfélagið Hornafjörður þarf að treysta innviði og við þurfum að efla okkur sem samfélag.
Markmiðið Góðs baklands er að við sem samfélag getum veitt stuðning samhliða eða áður en þörf er á aðstoð fagmanna. Þann 20. apríl var fundur með forsvarsmönnum sveitarfélagsins og heilsugæslunar þar sem ákveðið var að leggja áherslu á geðrækt á næstu árum. Verkefninu verður hrint af stað í haust. Þegar er ákveðið að Freymar og fleiri frá Traustum kjarna munu verða með viku námskeið um jafningjastuðning í desember á þessu ári sem verður nánar auglýst í haust.
Við búum í samfélagi sem hefur allar forsendur til að skara framúr í geðrækt. Öll þurfum við að leggja inn fyrir vinnunni, líta inn á við og vinna markvisst að því að gera Sveitarfélag Hornafjarðar að framúrskarandi geð samfélagi. Gott bakland er hreyfiafl sem var stofnað haustið 2024.









