Velferðarsvið Hornafjarðar er að innleiða hugmyndafræði þjónandi leiðsögn. Nýverið kom Arne Friðrik Jónsson, verkefnastjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks hjá Reykjavíkurborg og sérfræðingur í Þjónandi leiðsögn, til okkar og var með mentora námskeið fyrir nokkra starfsmenn ásamt því að vera með fræðslufyrirlestur fyrir alla starfsmenn Velferðarsviðs Hornafjarðar. Hlutverk mentora er að aðstoða við innleiðingu og er tilgangur innleiðingar að skapa jákvæðara og betra andrúmsloft, bæta samskipti og auka lífsgæði þjónustunotenda. Markmið þjónandi leiðsagnar er líka að mæta þjónustunotendum með virðingu, sýna þeim væntumþykju ásamt því að þau upplifi mannlega reisn.  Starfsmaður þarf að vera tilbúinn að veita skilyrðislausa umhyggju. Hugmyndafræðin byggir á kærleiksríkri nálgun og krefjandi hegðun er mætt með umhyggju og virðingu.

Auglýsing

Grunnstoðir þjónandi leiðsagnar eru fjórar: Öryggi, að fá umhyggju og kærleika, að veita umhyggju og kærleika og þátttaka.

Öryggi: einstaklingur upplifi sig öruggan í návist starfsfmanns, upplifi alltaf öryggi og sé laus við ótta.

Að fá umhyggju og kærleika: Starfsmaður beri hag einstaklings fyrir brjósti og sýni skilyrðislausan kærleika.

Klara Ösp, Wiktoria Anna, Helga, Þóra Birna og Aðalheiður Sól

Að veita umhyggju og kærleika: Einstaklingur fær tækifæri til að eiga hlutdeild í lífi annarra, kynnast fólki og sýna umhyggju og kærleika.

Þátttaka: Einstaklingur fær tækifæri til að taka þátt og stjórna sínu lífi.  Hann á líka val um að hafna þátttöku í athöfnum og verkefnum heima eða á vinnustað.

Verkfæri þjónandi leiðsagnar erum við sjálf. Í verkfærakassanum eru orð, augu, hendur og nærvera.

Orð: Notum hvetjandi, jákvæð orð og forðumst að skamma og skipa fyrir. Raddblærinn er hlýr og hvetjandi.

Augu: Notum hlýlegt augnatillit. Pössum að það sé samræmi á milli þess sem við segjum með orðum og þess sem við segjum með augunum.

Hendur: Við notum snertingu til að sýna umhyggju, hrósa, hugga og hvetja. Förum ekki yfir mörk þar sem sumum finnst snerting óþægileg.

Nærvera: Snýst um að vera til staðar með fullri athygli ásamt því að sýna umhyggju og hlýju. 

Fjölbreytileikavikan er í mars og er áhersla á kærleikann í ár. Velferðarsviðið ætlar að taka þátt og ætlum við að rýna í kærleikann með þjónandi leiðsögn í huga. Hvernig við sýnum kærleika þegar við setjum mörk svo eitthvað sé nefnt. Við munum ræða kærleikann í rapportum og nota kærleiks-hugleiðslur. 

Við ætlum að vinna saman að því að koma góðum leiðbeiningum til nýrra starfsmanna. Við ætlum líka að hafa hópeflisdag þar sem starfsfólk og þjónustunotendur fara saman í allskonar leiki, borða saman og hlæja.

Þjónandi leiðsögn er fyrir alla sem vilja sýna kærleika og hlýju, bæta samskipti, sýna öllu fólki virðingu og skilja að í krefjandi aðstæðum mætum við öllum með hlýju.

Hér höfum við stiklað á stóru og vonandi náð að gefa smá innsýn í hugmyndafræðina um þjónandi leiðsögn.

Gæska gefur gæsku

Hlýjar kveðjur
Ragnheiður Rafnsdóttir, verkefnastjóri Iðju og Dagþjónustu.

Tags: