Greinarhöfundar að grúska í
heimildum á bókasafninu

Á vordögum 1978 fór fram umræða í Heppuskóla um hvort ekki væri rétt að efla skólann með því að hefja þar einnig nám á framhaldsskólastigi auk hins skyldubundna grunnskólanáms. Kom þar ýmislegt til greina, svo sem iðnnám og nám tengt sjómennsku.

Auglýsing

Fljótlega var ákveðið að láta á það reyna að hefja kennslu á fyrsta stigi skipstjórnarnáms. Skólanefnd Hornafjarðar var því meðmælt að reynt yrði að koma þessu námi á. Leitað var til formanns stjórnar Útvegsmannafélgs Hornafjarðar sem þá var Jón Sveinsson og hann beðinn um að koma með í þessa vegferð. Reyndist það auðsótt mál og var stjórn félagsins tilbúin til að styðja við þetta mál enda mikill skortur á réttindamönnum í vaxandi bátaflota Hornfirðinga.

Frá vinstri uppi. Bjarni E. Olgeirsson, Ásgeir Gunnarsson, Gestur Halldórsson, Davíð Sveinsson, Ómar Fransson, Sigurður Guðnason kennari, Ásgrímur Ingólfsson

Með þetta að veganesti fór skólastjóri Heppuskóla, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson, á fund skólastjórnenda Stýrimannaskólans. Niðurstaða þess fundar var sú að hefja samstarf um þetta nám við Heppuskóla. Aðalinntak samkomulagsins var að námið yrði á ábyrgð Stýrimannaskólans. Drög að samkomulagi voru sett á blað þar sem áhersla var lögð á að kennt yrði sama námsefni, sömu námskröfur og próf í Stýrimannaskólanum. Menntamálaráðuneytið var einnig samþykkt þessari tilhögun og framkvæmd skipstjórnarnáms á Höfn

Að fengnum leyfum fyrrgreindra var hafin leit að kennurum með tilskilin skipstjórnarréttindi, með að lágmarki tveggja ára skipstjórnarnám að baki. Niðurstaðan var sú að Örn Þór Þorbjörnsson leiddi deildina fram til áramóta og eftir það Skúli Waldorff, kennari við Heppuskóla. Kallaði þetta á nokkrar tilfæringar á starfsliði skólans. Aðrir kennarar voru að mestu leyti starfsmenn við Heppuskóla. Einnig komu kennarar úr samfélaginu að deildinni svo sem þeir sem kenndu sjómennsku, siglingareglur og skyndihjálp og einnig prófdómarar svo fylgt væri öllum kröfum Stýrimannaskólans.

Guðjón Pétur Jónsson, Jón Karlsson, Stefán Pétur Ólafsson, Axel Jónsson, Bjarni Snæland Jónsson, Jón Helgi Matthíasson, Guðjón Hermann Þorbjörnsson, Óðinn Eymundsson, Vigfús Vigfússon. Á myndina vantar Jón Heiðar Pálsson. Kennari Skúli Waldorff situr fyrir framan hópinn.

Vorið 1979 útskrifuðust 10 nemendur með skipstjórnarréttindi, 1. stigi, frá Heppuskóla. Undirritaði Jónas Sigurðsson, skólastjóri Stýrimannaskólans, prófskírteini til staðfestingar því að þeir höfðu lokið tilskildu námi að öllu leyti. Með því var stigið fyrsta skrefið í skipstjórnarnámi á Höfn.

Framhald varð á þessu námi á Höfn því skólaárið 1981 – 1982 útskrifuðust 13 nemendur. Halldór Halldórsson var aðalkennari þetta skólaár og kennt var í húsnæði verkalýðsfélagsins í Miðtúni. Sex nemendur útskrifuðust skólaárið 1985 – 1986. Aðalkennari var Hornfirðingurinn Sigurður Guðnason. Lauk þá þessu námi á Höfn og um leið merkilegu frumkvöðlastarfi sem skilaði hornfirska bátaflotanum mörgum sjómönnum með skipstjórnarréttindi og um leið til hagsbóta fyrir samfélagið.

Með sama hætti og framangreint var gerður samningur við Vélskóla Íslands. Karl Karlsson var yfir þessu námi og kenndi hann nánast allar greinar við vélstjóranámið. Sú breyting varð á að Guðmundur Ingi Sigbjörnsson undirritaði prófskírteinin sem staðfestu að 17 nemendur höfðu lokið 2. stigi vélstjórnarnáms. Þessi deild var starfrækt skólaárið 1984 – 1985. Þetta nám hafði mikil áhrif á fjölgun réttindamanna við vélstjórn í hornfirska bátaflotanum.

Nemendalistar frá 1978 – 1986

Nemendur sem stunduðu nám við Stýrimannadeild Heppuskóla skólaárið 1978 – 1979

  • Axel Jónsson
  • Bjarni Snæland Jónsson
  • Guðjón Pétur Jónsson
  • Guðjón Hermann Þorbjörnsson
  • Jón Heiðar Pálsson
  • Jón Karlsson
  • Jón Helgi Matthíasson
  • Óðinn Eymundsson
  • Stefán Pétur Ólafsson
  • Vigfús Vigfússon

Nemendur sem stunduðu nám við Stýrimannadeild Heppuskóla skólaárið 1981 – 1982

  • Björn Júlíusson
  • Ingvaldur Ásgeirsson
  • Gestur Halldórsson
  • Guðmundur Elmar Guðmundsson Vestmann
  • Grétar Vilbergsson
  • Helgi Sigfús Ólason
  • Jóhann Sigurður Kristjánsson
  • Jón Hafdal Héðinsson
  • Sigfús Harðarson
  • Sæmundur Gíslason
  • Sigurður Oliver Staples
  • Óli Jón Ólason
  • Tómas Hilmarsson

Nemendur sem stunduðu nám við Vélstjóradeild Heppuskóla skólaárið 1984 – 1985

  • Björn Þór Ármannsson
  • Benedikt Þór Ármannsson
  • Gústaf A. Ólafsson
  • Gísli Páll Björnsson
  • Helgi Leifsson
  • Ingólfur Vopni Ingvarsson
  • Kári Alfreðsson
  • Kristján Guðnason
  • Sigurjón Steindórsson
  • Sigurjón Óskarsson
  • Sigurður Hlöðversson
  • Reynir Örn Ólafsson
  • Ólafur Einir Einarsson
  • Torfi Þór Friðfinnsson
  • Þorvarður B. Gíslason

Nemendur sem stunduðu nám við Stýrimannadeild Heppuskóla skólaárið 1985 – 1986

  • Ásgrímur Ingólfsson
  • Ásgeir Gunnarsson
  • Bjarni E. Olgeirsson
  • Davíð Sveinsson
  • Gestur Halldórsson
  • Ómar Fransson

Guðmundur Ingi Sigbjörnsson
Stefán Ólafsson

Tags: