
Síðastliðna mánuði hefur verið mikið að gera hjá báðum deildum. Við höfum verið að vinna í byggingu nýrrar Björgunarmiðstöðvar sem gengur mjög vel. Við byrjuðum nýja árið á að flytja okkur yfir í nýja húsið með formlegum hætti. Mættum við úr báðum deildum hjá gamla húsinu og voru fánar okkar dregnir niður af reyndum félögum og gengum við öll saman að nýja húsinu okkar og drógum fána okkar upp þar. Að lokinni fánahyllingu fórum við inn í hús þar sem boðið var upp á kaffi og vöfflur.
Nýja húsið okkar er í vinnslu og eru bæði Frumherji og Sjúkrabílarnir að komast að í nýja húsinu. Salurinn hjá Björgunarfélaginu er kominn á góðan stað og er hægt að nota þá aðstöðu að einhverju leyti.
Slysavarnadeildin Framtíðin er flutt með allt sitt í nýja húsið þó að við getum ekki notað það strax en stefnum samt á að halda upp á sumardaginn fyrsta með kaffisölu í nýja húsinu. Þá gefst bæjarbúum kostur á að koma í kaffi og kökur og í leiðinni að skoða húsið sem er hið glæsilegasta.

Allt þetta er gert í sjálfboðavinnu og eru félagsmenn dugnaðar fólk sem lætur ekkert stoppa sig. Þessi vinna er gífurlega mikil og aðdáunarvert að fylgjast með fólki sem gefur mikið til samfélagsins í þessari vinnu. Björgunarmiðstöð er fyrir allt samfélagið, því það má eiginlega segja það að við þurfum örugglega einhvern tímann á lífsleiðinni aðstoð frá sjálfboðaliðum hvar sem þeir eru og þurfum við því að hafa aðstöðu fyrir tæki, tól og mannskap.
Allt þetta þarfnast fjármagns og hafa fyrirtæki og einstaklingar verið dugleg að styrkja okkur og höfum við líka staðið fyrir allskonar fjáröflunum. Héldum við konudags kvöld á veitingahúsinu Heppunni með flottri matarveislu og heppnaðist glæsilega með góðri mætingu ykkar Hornfirðinga og erum við í skýjunum með kvöldið. Viljum við þakka Heppu fyrir aðstoð og lánið á salnum, Pakkhúsinu fyrir alla aðstoð ásamt kokkunum, þeim Stefáni Reyni og Alexander Alvin fyrir þeirra vinnuframlag.
En betur má ef duga skal. Við ætlum að skella í eitt happdrætti sem kallast Björgunarlínan. Munum við ganga í hús í byrjun mars ásamt því að selja í Nettó. Allur ágóði þessa happdrættis mun renna til Björgunarmiðstöðvarinnar. Við vonum það innilega að þið Hornfirðingar takið vel á móti sölufólki okkar eins og alltaf.





