HeimaHöfn hóf sitt annað starfsár síðastliðið haust og er áherslan nú á samfélagsþátttöku ungmenna. Fyrir þau sem þekkja ekki verkefnið er HeimaHöfn samfélagsverkefni á vegum Nýheima þekkingarseturs sem miðar að því að styrkja tengsl ungs fólks við heimabyggð sína. Verkefnið vinnur með ungmennum á aldrinum 16–25 ára í samstarfi við skóla, atvinnulíf og aðra lykilaðila samfélagsins og býður upp á ráðgjöf, tengslamyndun og ýmis tækifæri til þátttöku og fræðslu. Markmið HeimaHafnar á öðru starfsári er að efla tengsl ungmenna við samfélagið sitt og auka félagslega virkni þeirra ásamt því að styrkja sjálfstraust og skapa vettvang þar sem þau geta haft raunveruleg áhrif á nærumhverfið.
Í haust hlaut verkefnið styrk úr Örvari, styrktarsjóði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, til að vinna verkefnið Samfélagið okkar í samstarfi við ungmennaráð Hornafjarðar. Markmiðin voru annars vegar að styrkja ungmenni í sjálfstæðri upplýsingamiðlun og myndbandsgerð og hins vegar að miðla sýn þeirra á samfélagið til annarra ungmenna og íbúa. Vinnan var tvíþætt, fyrst unnu ungmennin í vinnustofu þar sem jákvæðir þættir samfélagsins voru kortlagðir út frá áherslum HeimaHafnar. Í kjölfarið tóku ungmennin þátt í framleiðslu og upptökum myndefnis þar sem rödd þeirra og sýn fengu að njóta sín. Myndböndin verða kynnt á næstunni.

Yfir veturinn hefur HeimaHöfn einnig staðið fyrir fjölbreyttum viðburðum. Í jólafríinu var haldið pop-up ungmennahús í samstarfi við DOKK þar sem ungmenni gátu hist, skapað og átt samverustund. Stelpu- og strákaviðburðir voru haldnir í febrúar fyrir nemendur í 10. bekk og FAS. Viðburðirnir byggðu á hugmyndum sem nemendur sjálfir lögðu fram á fundi verkefnisins í haust. Strákaviðburðurinn fór fram hjá Fenri Elite þar sem Erlendur Rafnkell Svansson leiddi dagskrá sem lauk með kraftmikilli crossfit æfingu. Stelpuviðburðurinn var leiddur af Lukku Óðinsdóttur, förðunarfræðingi, þar sem farið var yfir grunnatriði í húðumhirðu, einfaldri dagförðun og hárgreiðslu. Viðburðirnir voru vel sóttir og einkenndust af jákvæðni og áhuga. Sýna þeir vel hvernig samstarf við aðila í nærumhverfinu getur skapað uppbyggileg tækifæri fyrir ungmenni utan skólatíma.
Framundan eru fleiri viðburðir sem byggja á virkri þátttöku nemenda. Í mars er stefnt að badmintonæfingu og sjálfstyrkingarviðburði fyrir nemendur FAS og 10. bekkjar með Bjarti Guðmundssyni. Í apríl er áformuð kajakferð þar sem ungmenni taka þátt í undirbúningi frá upphafi til enda og fá þannig innsýn í skipulag og framkvæmd viðburða. Einnig verður atvinnukynning fyrir nemendur í apríl. Það verður því nóg um að vera og við hlökkum til vorsins.




