
Ritstjóri hafði samband við Rannveigu Einarsdóttur og óskaði eftir því að fá að birta gönguleið úr bók hennar og Ferðafélags Íslands “Gönguleiðir við Hornafjörð”. Nú fer að vora og umhverfið okkar í Hornafirði býður upp á marga ævintýralega staði til að ganga um. Við báðum Rannveigu að velja eina leið úr bókinni sem væri góð gönguleið á þessum árstíma.
Leið númer þrjú



Leið númer þrjú út á Horni er létt og skemmtileg gönguleið sem er fær allt árið. Ekið er út af Þjóðvegi 1 við Almannaskarð og ekið út að Horni þar sem gangan hefst. Gengið er austur með fjallshlíðinni og fyrsti viðkomustaðurinn er gamli bærinn og umhverfi hans. Þar hefur verið reist víkingaþorp sem gaman er að skoða. Þar er við hæfi að láta hugann reika til ársins 1873, en þá varð eitt mesta sjóslys sem sögur fara af hér úti fyrir ströndinni. Heimilisfólkið á Horni vann þá mikið björgunarafrek og hlúði að skipbrotsmönnunum. Áfram er gengið austur með hlíðinni austur á Hafnartanga. Þar má sjá rústir herstöðvar sem þarna var starfrækt á stríðsárunum. Ef grannt er skoðað má einnig sjá eldri rústir, sem eru rústir gamallar verstöðvar sem var í Hornsvík. Þangað komu menn frá öðrum landshlutum á vertíð. Einn af þeim var Kolbeinn sakamaður sem hafðist við í Kolbeinshelli sem er í hlíðinni upp af Hornsvík. Gengið er til baka og við Fiskakletta er gengið út með ströndinni eftir Kirkjusandi í átt að ratsjárstöðinni og Þaðan milli hárra melgresishólanna meðfram veginum heim að upphafsstað við Horn.
Kirkjusandur er einstaklega slétt og falleg fjara. Þar er aðgrunnt og oft sléttur sjór. Hressandi er að fara úr sokkum og skóm og ganga berfættur eftir ströndinni. Þar er líka kjörinn vettvangur til sandkastalagerðar og fleiri leikja.



