Lífið í FAS gengur sinn vanagang. Nemendur komu kraftmiklir til starfa eftir jólafríið og nú undirbúa þeir Opna daga sem haldnir verða í byrjun mars. Á þeim dögum verður hefðbundinni stundatöflu ýtt til hliðar og nemendur fást við skapandi viðfangsefni á borð við snyrtivörugerð, krossfitiðkanir og fleira skemmtilegt. Ef mér skjátlast ekki mun án efa verða gripið í spil inn á milli og þau sem trú eru sínum hornfirsku rótum munu þar vafalítið spila Hornafjarðarmanna.
Opnu dagarnir enda með árshátíð en á hana mæta þýskir nemendur frá Beverungen sem er þýskt þorp norður af Frankfurt. Þýsku nemarnir verða gestir okkar á Opnu dögunum en hingað koma þeir til að kynnast nemendum og námi í FAS. Sjö nemendur skólans munu endurgjalda ferðina og halda í heimsókn til Þýskalands um miðjan maí undir tryggri stjórn okkar ágætu kennara, þeirra Agnesar Heiðu Þorsteinsdóttur og Hjördísar Skírnisdóttur.

Nemendaskiptaverkefni hafa ætíð verið ríkur þáttur í starfi skólans en nú er lagt kapp á að efla þessi samskipti. Miðað er við að allir nemendur skólans fái í framtíðinni tækifæri til að hleypa heimdraganum og komist í utanför með FAS í gegnum alþjóðleg samstarfs- eða nemendaskiptaverkefni.
Foreldrar nemenda skólans hafa komið inn með krafti og styðja fullir eldmóðs við uppbygginguna hér í FAS. Til að mynda vinnum við að því að koma aftur á iðnnámi í Hornafirði og ekki má heldur gleyma því að við störfum þétt með sveitarfélaginu við að efla fjölmenningarsamfélagið; t.a.m stunda nú um 30 nemar nám hér í íslensku sem öðru máli við skólann. Í skólanum eru nú um 150 nemendur og staðnemum er nú tekið að fjölga á ný. Fjarnámið hefur verið mikill vaxtarbroddur en þessi dægrin vinnum við að eflingu fjarnámsins og höfum notið til þess liðsinnis Sigrúnar Svövu Ólafsdóttur frá Svínafelli í Öræfum en hún starfaði lengi sem sérhæfður kennsluráðgjafi við Háskólabrú Keilis. Einnig mun Lára Stefánsdóttir, skólameistari við Menntaskólann á Tröllaskaga, heimsækja okkur á næstunni og miðla okkur af sinni dýrmætu reynslu en skólinn hennar hefur staðið í stafni við þróun fjarnáms á framhaldsskólastiginu.

Ég hóf störf hér við skólann þann 1. nóvember. Ég er þakklátur fyrir góðar móttökur hér í sveitarfélaginu. Það er vart sá mannfagnaður hér sem mér hefur ekki verið tekið höndum tveim og ég skynja greinilegan hlýhug í garð skólans. Við í FAS tölum öll einum rómi um mikilvægi þess fyrir okkar landfræðilega einangraða sveitarfélag að eiga framhaldsskóla. Kennarahópurinn er kröftugur, hefur fjölbreyttan bakgrunn og menntun sem nýtist skólanum vel. Í skólanum er sem sagt kraftur og gleði og hér morrar sko enginn í iðjuleysi. FAS hefur átt góða vini fyrr sem nú, og nú leggjumst við öll á árarnar og gerum litla skólann okkar enn stærri og enn öflugri.




