Eldri Hornfirðingar á göngu í Óslandi

Einhverjum finnst kannski fyrirsögnin kátleg, skrifuð af formanni Félags eldri Hornfirðinga (FeH) um eldra fólk. Allir Hornfirðingar 60 ára og eldri geta verið félagar í FeH. Sá sem nær sextugs aldri getur reiknað með að eiga fjórðung ævinnar eftir, oftast við góða heilsu og öruggan fjárhag. Fólk fer smátt og smátt að huga að starfslokum og við það opnast dyr inn í félagslíf og hagsmunamál þeirra sem eldri eru. Þið ykkar sem hafa náð aldri en ekki hafa gengið í félagið eða þekkið ekki til þess eruð velkomin í Ekru, félagsaðstöðu eldri Hornfirðinga. Þar er alltaf fólk sem er tilbúið að spjalla og miðla fróðleik. Einnig eru reglulegar auglýsingar í Eystrahorni og opnir fundir. Þá heldur félagið úti Facebook síðu fyrir félagsmenn.

Auglýsing

Alveg eins og við teljum börn og ungt fólk fjöregg hverrar byggðar þá er eldra fólk nálægt því að vera kjölfestan, það sem heldur samfélaginu á réttum kili. Þegar minnst er á heilbrigðismál og lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar þá sveima orðin fráflæði, aðflæði, vandi, byrði og baggi um og yfir og allt í kring. Stundum er tæpt á kostnaði. Um leið og við hreykjum okkur af því að vera langlíf þá stynur excelgerðarfólk undan því sama. Það eru of margir sem líta framhjá því sem félagsfært, lífsreynt eldra fólk gefur samfélagi. Sjáið allar útsvarstekjurnar, fasteignaskattana og tekjuskattinn sem við greiðum. Við erum öflugir þátttakendur í lífinu oft með þroskaðar skoðanir. Hugsið ykkur bara allt sem við höfum reynt, við sem ýttum úr vör tæknivæddu samfélagi nútímans. Við sem höfum tekið þátt í hraðri þróun tækninnar og munum fundi sem byrjuðu á réttum tíma (engin vandamál með tölvutengingar) og hljóðkerfi sem bæði var hægt að flytja tónlist og söng í á sama tíma.

Tónlist, söngur og hljóðkerfi! Það leiðir hugann beint að spennandi mánuðum framundan. Í sumar var Ekrusalur, eldhús og snyrtingar endurbætt. Á næsta ári verða gerðar endurbætur á félagsaðstöðu FeH, það er austurenda neðstu hæðar Ekru. Þegar þið lítið við í Ekru þá er ekki úr vegi að ganga um og velta fyrir sér hvernig starfsemi væri hægt að hafa þar. Hvað sjáið þið fyrir ykkur til framtíðar? Nú er verið að vinna að hönnun svo hægt verði að leita tilboða með vorinu. Auðvitað er það ekki stjórn FeH sem stendur ein fyrir þessu heldur leiðir Sveitarfélagið Hornafjörður verkið. Í gildi er samningur milli sveitarfélagsins og FeH þar sem félagið tekur að sér að reka félagsstarf fyrir alla eldri hvort sem þeir eru félagsmenn eða ekki. Í núgildandi samningi er grein um að aðilar vinni sameiginlega að því að bæta aðstöðuna í Ekru en sveitarfélagið ber kostnaðinn.

Eftir áramót, líklega í febrúar, verður boðað til fundar þar sem tillögur og teikningar verða kynntar og félagsfólki boðið að gera athugasemdir. Reyndar tekur stjórn þakklát við ábendingum nú þegar. Frumhönnun hefur verið kynnt á í það minnsta þremur fundum undanfarin tvö ár en er nú að færast af hugmyndavinnu í aðgerðir.

Bráðlega hefst vinna við endurskoðun deiliskipulags á svæðinu við Víkurbraut 24–30 og nærliggjandi reiti. Félag eldri Hornfirðinga hefur tilnefnt fulltrúa í vinnuhóp í þessu viðamikla verkefni sem snertir marga ólíka hagsmunaaðila. Við hlökkum til að taka þátt í vinnunni sem er skýrt dæmi um heildræna nálgun í framtíðarsýn um málefni sem varða félagsmenn.

Í öllu starfi og umgjörð í og við Ekru sést og heyrist að hér hefur verið og er vilji til að nýta og byggja undir virkni og auð þann sem býr í eldri Hornfirðingum. Í þessum pistli er ekki við hæfi að ræða samning sem sveitarfélagið gerði um virkni og þjónustu í Öræfum þar sem FeH er ekki aðili að honum. Við getum ekki annað en lýst ánægju með þann samning og greinum möguleika á að miðla þekkingu og félagsskap. Allt er þetta hornsteinar öflugs samfélags til framtíðar.

Að lokum er við hæfi að benda á að þeir sem eru í stjórn félaga eldra fólks heyra oft minnst á Tryggingastofnun, tekjuáætlanir og skuld sem myndast. Tryggingastofnun leggur áherslu á að mikilvægt er að tekjuáætlun sé eins nákvæm og hægt er. Til að uppfærð tekjuáætlun taki gildi í næsta mánuði þarf að breyta tekjuáætlun fyrir 15. hvers mánaðar. Takið eftir, það má breyta tekjuáætlun hvenær sem er. Einnig er bent á að vanáætlun fjármagnstekna er aðalástæða þess að skuld myndast. Það bendir margt til þess að það er skynsamlegt að skoða vel vaxtatekjur áður en tekjuáætlun er skilað.

Um og eftir miðjan janúar hefst venjubundið starf eftir jólafrí. Þá styttist í þorrablót og venjan er að spila Hornafjarðarmanna auk alls þessa sem við gerum svo sem boccia, snóker, spil og göngur auk hreyfingar í vatni.

Framundan er félagsvist 19. og 26. nóvember, desember samvera á Hótel Höfn að kvöldi 4. desember. Það er ekki of seint að skrá sig, sjá auglýsingu í 9. tbl. Eystrahorns, auk þess að kínaskák er spiluð eftir hádegi á föstudögum. Þessi upptalning er að öllu hinu ólöstuðu.

Í stjórn FeH starfsárið 2026–2027 eru Eirný B. Vals formaður, Reynir Gunnarsson gjaldkeri, Hulda Laxdal Hauksdóttir ritari, Ari Jónsson og Sverrir Þórhallsson meðstjórnendur og Bjarney Pálína Benediktsdóttir og Guðbjartur Össurarson varamenn.

Aðsend grein: Eirný Val, formaður Félags eldri Hornfirðinga

Tags: