Mér finnst kominn tími til að hrósa útgefendum Eystrahorns fyrir vandað og fjölbreytt blað. Það er ekki sjálfgefið að fólk vilji taka slíkt verkefni að sér. Prentútgáfa er í eðli sínu kostnaðarsöm og þar með áhættusöm fyrir útgefendur. Ég þekki sjálfur aðeins til útgáfunnar og vil því þakka Guðrúnu og Tjörva fyrir þau blöð sem komin eru út og hvet þau til að halda áfram á sömu braut.
Ég held að margir átti sig ekki á allri vinnunni sem liggur að baki hverju tölublaði og því álagi sem fylgir því að koma blaðinu vel uppsettu í prentun á réttum tíma. Ég er líka nokkuð viss um að útgefendur velta því fyrir sér hvort auglýsingatekjur og valgreiðslur dugi fyrir kostnaði og sanngjörnum launum fyrir vinnu þeirra.
Ef við viljum áfram fá blaðið mánaðarlega í núverandi mynd þurfum við að standa saman um að styðja við útgáfuna.

Í því samhengi langar mig að nefna tvennt. Blaðið er opinn vettvangur fyrir greinar og fréttir úr samfélaginu og þannig á það að vera. Efni sem fyrst og fremst kynnir vöru eða þjónustu á hins vegar heima á auglýsingasíðunum. Eins er eðlilegt að greiða uppsett verð fyrir auglýsingar, nema sérstakar ástæður séu til annars. Þetta skiptir meira máli en margur heldur. Í svo litlum rekstri kemur hver afsláttur og hver ógreidd auglýsing í raun beint niður á launum útgefenda.
Þetta er ekki sagt til að draga úr neinum. Þvert á móti vona ég að sem flestir haldi áfram að auglýsa og senda inn efni. Ég hvet lesendur sem ekki styðja blaðið nú þegar til að gera það og auglýsendur til að nýta sér þann góða miðil sem Eystrahorn er.



