Krabbameinsfélag Suðausturlands stendur fyrir ljósagöngu í Almannaskarði fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 17. Gangan er opin fólki á öllum aldri sem vill taka þátt og sýna stuðning í verki.

Auglýsing

Þátttökugjald er 500 krónur og frjáls framlög eru vel þegin. Gjaldið greiðist á reikning félagsins: kt. 420102-2080, reikningur: 0172-15-380067 og allur ágóði rennur til þess.

Krabbameinsfélag Suðausturlands er aðildarfélag Krabbameinsfélags Íslands og sinnir íbúum á Suðausturlandi. Félagið var stofnað 21. apríl 1970. Hlutverk þess er meðal annars að veita fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess þjónustu og stuðning. Meðal verkefna er að styrkja einstaklinga sem þurfa að dvelja langdvölum í Reykjavík vegna krabbameinsmeðferðar. Með starfsemi sinni vill félagið styðja fólk á svæðinu sem veikist af krabbameini og aðstandendur þess á krefjandi tímum.

Ljósagangan í Almannaskarði gefur fólki tækifæri til að koma saman og taka þátt í viðburði á vegum félagsins. Nánari upplýsingar um félagið má finna á Facebook-síðunni Krabbameinsfélag Suðausturlands. Þátttakendur þurfa að taka með sér ljós, t.d. ennisljós eða vasaljós, og klæða sig eftir veðri.

Gengið Almannaskarð. Mynd Sigurður Óskar

Fylgist með upplýsingum á Facebook-síðu Krabbameinsfélags Suðausturlands. Hlökkum til að sjá ykkur lýsa upp aðventuna!

Aðsend grein: Krabbameinsfélag Suðausturlands

Tags: