Góðan dag allir. Við í umhverfisnefnd Grunnskóla Hornafjarðar erum að vinna að grænfánaverkefni, sem við gerum á hverju ári. Í ráðinu eru krakkar í 5.–10. bekk. Í ár erum við að vinna með ákveðin þemu, sem eru hnattrænt réttlæti og hringrásarhagkerfið. Það sem við höfum gert hingað til er að fylla út matslista og við fundum reglulega. Í tengslum við grænfánaverkefnið okkar ætlum við að halda loppumarkað, og gefa ágóðann af borðaleigunni í gott málefni, við völdum að styrkja UNICEF sem styrkir íbúa á Gaza.

Auglýsing

Loppumarkaðurinn verður á Hafinu, laugardaginn 21. nóvember kl. 11–15. Leiga á borði er 5.000 kr. og hægt er að bóka borð hjá Þórdísi Maríu í síma 788-5665 eða á netfanginu thordise@hornafjordur.is.

Aðsend grein: Umhverfisnefnd Grunnskóla Hornafjarðar

Tags: