Í haust mældust í Svínafellsheiði ofan við Svínafellsjökul í Öræfum fyrstu marktæku hreyfingarnar frá því að vöktun hófst þar árið 2018. Að mati Veðurstofu Íslands er hætta í byggð lítil að svo stöddu. Ef skriður féllu úr hlíðinni yrði þó mikil hætta á jöklinum.

Auglýsing

Hreyfingar hafa mælst í hlíðinni frá 23. september. Þann 4. nóvember greindi Veðurstofan frá því að hægt hefði á hreyfingunum dagana á undan. Þegar litið er yfir síðustu vikur hafa þær verið fremur jafnar. Stundum hefur orðið stutt hlé og á köflum hafa hreyfingarnar aukist, hugsanlega í tengslum við úrkomu.

Þvert yfir hlíðina liggur um 1,7 kílómetra langt sprungukerfi. Starfsmenn ofanflóðavaktar Veðurstofunnar fóru um sprungusvæðið 12. nóvember, mældu fasta mælipunkta og gerðu mælingar með dróna. Þeir yfirfóru jafnframt mælibúnaðinn á heiðinni. Veðurstofan fylgist með hlíðinni í samvinnu við Háskóla Íslands.

Yfirlitskort af Svínafellsheiði. Rauða línan sýnir legu meginsprungunnar í hlíðinni. Merktar eru staðsetningar GPSstöðva, togmæla og fastpunkta sem notaðir eru til að fylgjast með hreyfingum á svæðinu.
Kort: gottvedur.is.

Óvíst er hvernig hreyfingarnar þróast. Þær gætu fjarað út eins og gerðist eftir að sprungurnar opnuðust á sínum tíma. Haldi þær áfram gætu hlutar hlíðarinnar fallið niður á jökulinn eða stærra berghlaup orðið. Samkvæmt hættumati Veðurstofunnar frá 2025 er líklegast að berghlaup stöðvist á jöklinum. Þó er ekki hægt að útiloka að það nái í lónið við jökulsporðinn og valdi flóði sem gæti ógnað svæðum neðan jökulsins.

Hægt er að fylgjast með þróun mála á Svínafellsheiði á vef Veðurstofu Íslands, gottvedur.is/vaktin.

Greinarhöfundur: Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Tags: