
Fyrir 31 ári síðan fór ég á mitt fyrsta Reiki-námskeið. Námskeiðið var haldið á Höfn, á vegum Kiwanisklúbbsins Óss. Þá hefði ég aldrei getað ímyndað mér hvert þetta ferðalag ætti eftir að leiða mig. Þegar ég hugsa til baka þá er það líka mjög merkilegt að karlaklúbbur skyldi fá Reikimeistara til Hafnar þar sem heilun vekur yfirleitt áhuga hjá fleiri konum en körlum.
Reiki varð hluti af minni eigin vegferð og hefur fylgt mér í gegnum árin, sem leið til að finna meiri ró, tengjast sjálfri mér og vinna með þá orku sem býr innra með mér. Á þessari vegferð minni hef ég kynnst fjölda fólks sem er að leita. Það er ótrúlega mikil streita í umhverfi okkar sem við föttum ekki fyrr en við kynnumst því hvað ró er og hvernig er hægt að slaka á í hversdeginum. Mjög margir byrja á öfugum enda og eru í raun að bíða eftir því að einhver færi þeim lausnina á silfurfati en fatta svo ekki að það þarf fyrst að byrja á sjálfum sér. Þegar þú leyfir innsæinu að ráða fara breytingarnar að gerast. Fyrir mér hefur verið frábær leið til að staldra við, róa hugann og tengjast sjálfum sér. Hún getur hjálpað okkur að gefa okkur tíma til að hlusta inn á við, sleppa spennu og skapa ró og jafnvægi í lífinu. Síðustu 14 árin hef ég verið að kenna Reiki heilun og fleira sem eflir sjálfstraustið. Ég hef bætt við mig þekkingu sem sjúkraliði og einbeitt mér að mannlega þættinum í mínu starfi.
Nú, 31 ári síðar, kem ég aftur á Höfn til að deila þeirri þekkingu og reynslu sem hefur fylgt mér á þessari vegferð. Ég verð í Sjálfstæðishúsinu á Höfn helgina 6.-8. nóvember og verð með tvö námskeið. Annars vegar svokallað Nornaþing sem er 5 klukkustunda námskeið fyrir konur á föstudeginum. Reikiheilun 1. og 2. stig verður svo kennt á laugardag og sunnudag. Til þess að taka þátt í námskeiðunum þarf enga sérstaka kunnáttu, bara að mæta með opinn huga og góða skapið. Það er hægt að fá nánari upplýsingar og skrá sig með því að senda mér tölvupóst á svava@tvaerstjornur.is
Kannski er þetta þitt fyrsta skref inn á nýja braut, rétt eins og það var fyrir mig fyrir 31 ári.



