Völvusagan var kvikmynduð og birtist í heimildamynd Sigrúnar Völu Valgeirsdóttur. Draumar, konur og brauð. Steinunn Jónsdóttir og Svanlaug Jóhannsdóttir flytja söng völvunnar við völvuleiðið undir Hellaklettum að loknum tónleikum í Kálfafellstaðarkirkju árið 2023

Fastur liður í starfsemi Þórbergsseturs er að halda tónleika ár hvert í samstarfi við Kálfafellsstaðarkirkju þann 29. júlí á Ólafsmessu á sumri. Um leið er rifjuð upp ævaforn saga um völvuna á Kálfafellsstað sem Torfhildur Hólm Þorsteinsdóttir skáldkona skráði fyrst niður. Segir hún völvuna vera systur Ólafs helga Noregskonungs og hafa flúið Noreg eftir að Ólafur bróðir hennar var drepinn á Stiklastöðum árið 1030 og og kom hún hér til Íslands í öruggt skjól. Samkvæmt Flateyjarbók bar hún nafnið Gunnhildur Sigurðardóttir og maður hennar var  Ketill kálfur og reistu þau bú á Kálfafelli. Þessi saga á rætur sínar að rekja í frumkristni á Íslandi allt frá því er Kálfafellsstaður var valinn kirkjustaður sveitarinnar og helgaður dýrlingnum Ólafi helga. Var völvan hrakin af staðnum á hjáleiguna Butru sem er þar nærri og átti hún í deilum þar við prestinn. Lagði hún þau álög á staðinn að þar gæti enginn prestur unað lengur en 20 ár og urðu þessi álög að áhrínsorðum. Þegar völvan dó var hún jarðsett í óvígðri mold neðan við Hellakletta í landi Kálfafellsstaðar langt frá alfaraleið.

Auglýsing

Um aldamótin 1700 var prestur á staðnum sem undi sér vel og útvegaði hann fagurskreytta styttu af dýrlingnum Ólafi helga til að hrinda álögunum. Sat sá presturinn þar í besta yfirlæti í alls 28 ár. Geta má þess að séra Brynjólfur Guðmundsson sat staðinn í tæp 60 ár eftir þetta á árunum 1727 – 1786 og var þá talið fullsannað að álögum völvunnar hafi verið hrundið.

Það var áfram trú manna að ef að prestar hlóðu upp leiði völvunnar eða hlúðu að því þá vildi til eitthvert happ í lífi þeirra. Það gerðist einmitt um aldamótin 1900 þegar séra Pétur Jónsson þurfti að byggja nýtt íbúðarhús á staðnum. Hafði hann sent vinnumenn sína að hlaða upp leiðið, en skömmu síðar átti að senda þá til Djúpavogs að kaupa viði til byggingar íbúðarhússins. Þá gerist það að rekur stórt og mikið tré á Sléttaleitisfjöru sem var í eigu kirkjunnar, tréð náði meðalmanni í mjaðmarhöfuð, segir Steinþór Þórðarson á Hala, var ferkantað og alin á breidd, segir Vilhjálmur Guðmundsson á Gerði, en 60 feta langt, – en þeir mundu báðir eftir þessum atburði þegar þeir segja söguna. Dugði rekatréð í alla burðarviði prestbústaðarins og vinnumenn hans fengu það verkefni að saga viðinn niður í stað kaupstaðarferðarinnar á Djúpavog.

Nú var svo komið á Kálfafellsstað í Suðursveit árið 2007 að presturinn á Kálfafellsstað séra Einar Guðni Jónsson hafði verið á staðnum í hartnær 18 ár og styttast fór í örugga vist hans samkvæmt álögum völvunnar. Þá sitja þeir í samræðum Fjölnir Torfason á Hala og séra Einar en hann var afabarn séra Péturs er síðast lét hlaða upp leiðið. Fjölnir ræðir við prest af miklum þunga að nú sé vissara fyrir hann að fara að huga að því að lagfæra leiðið eða sýna völvunni einhverja umhyggju ef  honum á að auðnast að sitja staðinn lengur. Einar tók orð hans alvarlega og það verður að samkomulagi þeirra á milli að hann taki það að sér að hlúa að leiðinu ár hvert, en Fjölnir og þeir í sameiningu haldi síðan mikla hátíð til að minnast völvunnar þegar þessum gjörningi prestsins er lokið. Þetta verður úr og því er það að árið 2008 er stofnað til fyrstu tónleika í Kálfafellsstaðarkirkju í samvinnu við Þórbergssetur þegar séra Einar hefur klippt og snyrt til í kringum leiðið undir Hellaklettum. Það var því 29. júlí það ár sem fyrstu tónleikarnir voru haldnir, völvusagan lesin í kirkjunni, völvuleiðið heimsótt og síðan voru kaffiveitingar í Þórbergssetri að lokinni athöfn. Björn Bjarnason þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra var einn af gestum hátíðarinnar og Rut Ingólfsdóttir og Richard Simm spiluðu á tónleikunum, ógleymanlegur dagur og ákveðið var að gera þetta að árlegum viðburði í Suðursveit. Geta má þess að Rut Ingólfsdóttir hafði einmitt tekið upp fiðluleik sinn í Kálfafellsstaðarkirkju áður og valið þann stað vegna einstaklega góðs hljómburðar og sannaðist þar að kirkjan er afar vel fallin til tónleikahalds.

Alls hafa nú verið haldnir 18 tónleikar til heiðurs völvunni með fjölmörgum listamönnum. Verður þetta vonandi að föstum sið í Suðursveit alla tíð enda unun að hlýða á góða tónlist í kirkjunni á Kálfafellsstað. Segja má því að mikill sé máttur völvunnar á Kálfafellsstað og að enn gætir áhrifa frá búsetu og lífi hennar, – konu sem bar að landi í Suðursveit fyrir tæplega 1000 árum síðan. Og ef til vill er það svo að örnefnin Gunnhildarsker og Gunnhildarvík úti fyrir fjöru Borgarhafnar beri vitni um landtöku hennar við Bjarnahraunssand. Um það eru eðlilega engar heimildir eða vitni en ekki skaðar að þekking á þeim örnefnum tengist þessari gömlu sögu.

Styttan af Ólafi helga stóð við altarið í Kálfafellsstaðarkirkju og söfnuðurinn hneigði sig fyrir henni þegar gengið var inn í kirkjuna í nær tvær aldir, – en í Knútsbyl 7. janúar 1886 í miklu fárviðri fauk nýreist timburkirkja af grunni og brotnaði í spón. Styttan af Ólafi helga fannst þá standandi upprétt niður í fjöru langt neðan við Kálfafellsstað. Var hún gefin til Þjóðminjasafnsins og er meðal merkustu kirkjumuna Íslands þar. Þangað er gaman að koma og heimsækja Ólaf helga sem horfir til manns hvössum augum og minnir okkur á tilveru sína í Suðursveit löngu eftir að kaþólskum sið og dýrlingatrú var hnekkt með siðaskiptum á Íslandi.

Þorbjörg Arnórsdóttir
Forstöðumaður Þórbergsseturs

Tags: