Hótel Skaftafell

Ég heiti Sophia Fingerhut og er sérkennari við Grunnskólann á Hofgarði í Öræfum. Skólinn okkar er nú í endurbótum, sem þýðir að við höfðum ekki aðgang að kennslurýmum þegar skólaárið hófst.

Auglýsing

Þar höfum við verið einstaklega heppin að hafa Önnu Maríu Ragnarsdóttur, eiganda Hótels Skaftafells, okkur við hlið. Hún brást fljótt við og útvegaði okkur húsnæði í hótelinu sínu, þannig að við getum nú haldið skólastarfinu gangandi. Þrátt fyrir að nú sé háannatími í ferðaþjónustunni höfum við fengið einstaklega hlýjar og góðar móttökur frá öllu starfsfólkinu.

Nemendur okkar fá á hverjum degi ljúffengan hádegisverð á hótelinu og njóta þeirrar einstöku og notalegu stemningar sem þar ríkir.

Anna María er sannarlega einstök manneskja og hefur fullvissað okkur um: „Við reddum þessu saman!“

Hún og starfsfólkið hennar eiga sannarlega mikið hrós skilið, því það er alls ekki sjálfgefið að leggja svona mikið á sig fyrir okkur.

Mig langar einnig að hrósa okkar frábæra skólateymi! Vegna endurbótanna, sem munu auk þess kalla á töluverða tiltekt og vinnu, störfum við nú á tveimur stöðum.

Allir standa sig frábærlega og hjálpast að svo allt gangi sem best. Mig langar sérstaklega að nefna skólastjórann okkar, Áróru Gústafsdóttur, sem leggur sig fram á hverjum einasta degi langt umfram það sem ætlast er til. Með skapandi lausnum, mikilli elju og ótrúlegri vinnu nær hún alltaf að gera sitt allra besta fyrir nemendur okkar.

Þið eruð algjörlega frábær!

Sophia Fingerhut

Tags: