Frá opnun jöklasýningarinnar Glaciers of Höfn

Ný jöklasýning, Glaciers of Höfn, var opnuð á Höfn í Hornafirði föstudaginn 14. ágúst. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, opnaði sýninguna.

Auglýsing

Sýningin er hugsuð til þess að gestir geti kynnst jöklunum okkar, ekki bara með því að klífa þá eða horfa á þá úr fjarlægð, heldur með því að fræðast um þá, upplifa þá og skilja betur hvaða áhrif þeir hafa haft á landið og nágrenni þeirra.

Vatnajökull og skriðjöklar hans eru allt í kringum Höfn og hafa mótað landslagið, árnar, náttúruna og samfélagið í gegnum tíðina. Þaðan kemur einnig slagorð sýningarinnar:

Where Ice Shapes Life.

Upplifunin tekur um 45 mínútur og skiptist í þrjá hluta.

Í fyrsta hlutanum fá gestir að kynnast heimi jöklanna. Þar er fjallað um hvernig jöklar verða til, hvernig þeir hreyfast og móta landið, jökulár og leysingarvatn, íshella, loftslagsbreytingar og margt fleira. Fræðsluefnið byggir meðal annars á efni frá Vatnajökulsþjóðgarði og lögð var áhersla á að gera það myndrænt, aðgengilegt og áhugavert fyrir fólk á öllum aldri.

Í öðrum hlutanum tekur sýndarveruleikinn við. Þar setja gestir upp VR-gleraugu og fá að ferðast inn í íshella, upp á fjallstinda og út á Jökulsárlón. Hugmyndin er að gefa fólki sjónarhorn og upplifun sem það ætti annars mjög erfitt með að nálgast.

Þriðji og síðasti hlutinn er kvikmyndin After Ice. Þar fá gestir að sjá með áhrifamiklum hætti hvernig jöklarnir á svæðinu hafa breyst á tiltölulega skömmum tíma. Myndin tengir þannig saman það sem gestir hafa fræðst um og upplifað í fyrri hlutum sýningarinnar og skilur eitthvað eftir hjá þeim þegar þeir ganga út.

Markmiðið með Glaciers of Höfn er að skapa áhugaverða heilsársupplifun á Höfn sem bæði fræðir og vekur forvitni; að fólk gangi út af sýningunni með aðeins meiri skilning á jöklunum en það hafði þegar það kom inn, en fyrst og fremst með enn meiri áhuga á þessari mögnuðu náttúru sem við höfum allt í kringum okkur.

Þorgrímur Tjörvi Halldórsson

Nánari upplýsingar: www.glaciersofhofn.is
Facebook: Glaciers of Hofn

Tags: