
Beint frá býli dagurinn verður haldinn sunnudaginn nk., 23. ágúst, kl. 13–16, fjórða árið í röð. Viðburðurinn hefur fest sig í sessi sem fjölskylduvæn matarhátíð í íslenskri sveit.
Í ár verður Hólmur Farm gestgjafi dagsins í Hornafirði. Árið 2024 var viðburðurinn haldinn á Háhóli og árið 2025 á Miðskersbúinu en árið 2023 var enginn viðburður haldinn í Hornafirði.
Markmið dagsins er að vekja athygli á hugmyndafræði Beint frá býli og smáframleiðslu matvæla, efla tengsl milli framleiðenda og neytenda og hvetja fleiri til að hasla sér völl á því sviði. Tilgangurinn er að kynna íbúum starfsemi heimavinnsluaðila á lögbýlum og smáframleiðslu matvæla í héraði og byggja upp tengsl á milli þeirra.
Á hverju ári taka sjö lögbýli að sér að vera gestgjafar, eitt í hverjum landshluta. Á staðinn safnast saman aðrir smáframleiðendur úr landshlutanum til að kynna og selja vörur sínar. Ýmis afþreying er í boði til viðbótar við það sem býlin sjálf hafa upp á að bjóða og eru viðburðirnir því afar fjölskylduvænir. Nánari upplýsingar um hvern viðburð má finna á vef Beint frá býli.
Afar góð mæting hefur verið hingað til, almennt mikil ánægja og sala framleiðenda góð. Með þátttöku sinni hafa neytendur stutt við íslenska matarmenningu, bændur og samfélög landsins.
Að deginum standa Samtök smáframleiðenda matvæla (SSFM) og Beint frá býli (BFB). BFB varð aðildarfélag SSFM árið 2022 og eru félögin með sameiginlegan framkvæmdastjóra sem er jafnframt verkefnastjóri dagsins. Í félögunum eru á þriðja hundrað félagsmenn, rúmur helmingur á lögbýlum, um fimmtungur á höfuðborgarsvæðinu og svipaður fjöldi í þéttbýli utan þess.
Beint frá býli dagurinn var fyrst haldinn árið 2023 í tilefni af 15 ára afmæli BFB. Viðtökurnar voru framar vonum og var því ákveðið að gera hann að árlegum viðburði. Dæmi eru um að aðsóknin hafi verið slík að malarvegir hafi verið merktir „high traffic“ á Google Maps.
Gestgjafarnir hafa öll árin lagt sig fram við að gera daginn sem fjölbreyttastan og áhugaverðastan. Auk markaðanna, þar sem bæði hafa verið seld matvæli og handverk, hefur fólk getað notið samveru í sveitinni og kynnst starfinu að baki framleiðslunni.
Viðburðirnir hafa verið styrktir ýmist af landshlutasamtökum, sveitarfélögum og uppbyggingarsjóðum og hefðu þeir ekki orðið að veruleika án þeirra. Hornafjörður hefur styrkt daginn öll árin, nú síðast með styrk úr atvinnu- og rannsóknarsjóði Hornafjarðar.
Nánari upplýsingar um viðburðinn á Hólmi má finna á Facebook og á vef Beint frá býli.


