Mynd: Þorsteinn Roy

Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli sínu um þessar mundir og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni verður boðið til afmælisfagnaðar í útibúum Landsbankans víða um land fimmtudaginn 20. ágúst frá kl. 14–16, þar á meðal í útibúinu á Höfn.

Auglýsing

Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og fagnar því 140 ára starfsafmæli í ár. TM á rætur sínar að rekja til ársins 1956 og fagnar 70 árum.

Boðið verður upp á léttar veitingar í útibúinu og eru viðskiptavinir og aðrir gestir velkomnir að líta við.

Byggt á fréttatilkynningu frá Landsbankanum.

Tags: