
Saxófónleikarinn Moritz Christiansen heldur tónleika í Hafnarkirkju mánudaginn 10. ágúst ásamt þýska djasstríóinu sínu frá Hamborg. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er aðgangur ókeypis, en tekið verður á móti frjálsum framlögum.
Tónleikarnir eru þeir fimmtu í tónleikaferðalagi tríósins um Ísland. Að ferðinni lokinni halda tónlistarmennirnir í hljóðver í Reykjavík, þar sem þeir munu taka upp nýja plötu með tónlistinni sem hefur orðið til og þróast á ferðalaginu.
Tengsl Moritz við Ísland hófust þegar hann stundaði skiptinám við Listaháskóla Íslands árið 2023. Honum féll vel við samfélagið og tónlistarlífið hér á landi og ákvað því að flytja aftur til Íslands haustið 2024, eftir útskrift frá tónlistarháskólanum í Álaborg. Haustið 2025 hóf hann meistaranám í Hamborg, en hefur síðan komið reglulega til Íslands til að spila með íslenskum hljómsveitum sínum og heimsækja vini. Nú kemur hann í fyrsta sinn til landsins með þýsku hljómsveitina sína.
Auk Moritz skipa tríóið Alex Petratos trommuleikari og Anton Deyß gítarleikari. Tónlist þeirra má flokka sem norrænan djass. Hún er fremur róleg, með víðum hljómi, skýrum laglínum og áherslu á að segja sögur í gegnum tónlistina. Lögin þróast hægt og stöðugt en geyma jafnframt óvænta hnykki og sveiflur.
Hafnarkirkja varð fyrir valinu vegna góðs hljómburðar, hæfilegrar stærðar og notalegs andrúmslofts. Moritz segir umhverfið á Höfn einnig hafa heillað tríóið og að vinir hans hafi mælt sérstaklega með kirkjunni sem tónleikastað.
Hlustaðu á tónlist tríósins: Hljóðdæmi á YouTube
Nánari upplýsingar um tónleikana: Facebook-viðburðurinn


