
Krónan undirbýr nú opnun nýrrar verslunar á Höfn í Hornafirði og leitar að starfsfólki í fjölbreytt störf í versluninni. Um er að ræða bæði fullt starfshlutfall og hlutastörf, og vantar starfsfólk í ýmis hlutverk, meðal annars á kassa, í áfyllingar, ákveðnar deildir, baksvæði og vaktstjórn.
„Við erum gríðarlega spennt að byggja upp nýjan starfshóp Krónunnar á Höfn. Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, hjálpsemi og liðsanda þar sem við berum öll ábyrgð á ástandi og velgengni verslunarinnar,“ segir Ólafur Rúnar Þórhallsson, forstöðumaður reksturs og þjónustu.
Í almennum störfum felast meðal annars afgreiðsla, áfyllingar, frágangur, ábyrgð á afgreiðslukassa og önnur verkefni sem til falla í versluninni.
Leitað er að ábyrgum einstaklingum sem búa yfir sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum og góðum samskiptahæfileikum. Krónan leggur áherslu á fjölbreyttan starfshóp, en hjá fyrirtækinu starfa yfir 1.200 manns á ólíkum aldri, í fjölbreyttum störfum og starfshlutföllum.
Meðal fríðinda eru styrkur til heilsueflingar, afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju, auk aðgangs að velferðarþjónustu Krónunnar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2026. Athugið þó að ráðningar hefjast fyrr og eru áhugasöm því hvött til að sækja um tímanlega.
Hægt er að kynna sér störfin og sækja um með því að smella hér: https://jobs.50skills.com/kronan/is/43907


