
Fyrir þau sem vita kannski ekki enn hvað Urban Sketcher er: þá er þetta alþjóðleg hreyfing þar sem fólk hittist og teiknar á staðnum, úti í umhverfinu sem það er að upplifa.
Í apríl ákváðum við að stofna þennan teiknihóp á Höfn og reyna að gera hann að opinberum hópi innan Urban Sketchers-samfélagsins. Ég tel að við höfum verið að standa okkur nokkuð vel, þar sem við höfum hisst um hverja helgi og jafnvel á virkum dögum þegar sérstök tilefni hafa verið, eins og Humarhátíð, sjómannadagurinn og þjóðhátíðardagurinn. Við höfum líka fengið tækifæri til að hitta alþjóðlega Urban Sketchers meðlimi. Í þessu tilfelli voru tvær samkomur haldnar í Gömlubúð með teiknurum frá Ameríku og Englandi. Ef það er frábær upplifun að deila tíma með sínum venjulega teiknihópi, þá er enn skemmtilegra að deila honum með fólki frá öðrum stöðum.
Við þurfum líka að þakka öllum þeim sem buðu okkur að teikna í görðunum sínum, á veröndum sínum eða á heimilum sínum og gáfu okkur þannig tækifæri til að kynnast þeim, sjá verk þeirra og festa þau á blað í skissubókunum okkar. Þar má til dæmis nefna Sólbakka og Stjörnustöðina. Við höfum einnig séð hótel og kaffihús frá öðru sjónarhorni, eins og Hrafnavelli, Hoffell, Brunnhól, Viking Café og Café Vatnajökull. Einnig höfum höfum við víkkað sjóndeildarhringinn út fyrir Höfn, fórum í Lónið, Mánagarð og í Öræfasveit, þar sem Býflugnabærinn opnaði dyr sínar fyrir okkur og við deildum teikningum og sögum. Við vorum einnig svo heppin að fá að kynnast sögunni í Kvískerjum.
Þessir síðustu mánuðir hafa verið stöðugt ævintýri: að finna daginn og staðinn, kynnast nýju fólki, deila áhugamálinu okkar og læra með því að æfa okkur, spjalla saman og kynnast nýjum aðferðum og efnum. En umfram allt snýst þetta um að kynnast samfélaginu og svæðinu sem við búum á í gegnum ólík sjónarhorn sem við festum í skissubækurnar okkar.




Við lukum sumrinu með sýningu á skissubókunum okkar þann 30. ágúst. Jafnframt hefjum við vetrarstarfið, þar sem við vonumst til að halda áfram að hittast aðra hverja viku, en í þetta sinn innandyra.
Við viljum þakka af öllu hjarta öllum þeim sem fylgjast með okkur og bjóða okkur að teikna umhverfi sitt. Það er sannarlega mikil ánægja.
Að lokum viljum við hvetja öll þau sem hafa áhuga til að koma á þá teiknisamkomu sem þeim hentar. Það eina sem þarf að taka með er skissubók, blýant og löngunina til að teikna.
Ef einhver vill bjóða okkur að teikna í húsakynnum sínum eða veit um einhvern áhugaverðan stað sem við gætum heimsótt, má hafa samband við okkur. Fylgist einnig með okkur á Instagram @uskhofn, á Facebook undir Urban Sketcher Höfn eða sendið okkur tölvupóst á uskhofn@gmail.com.



