
Dagana 11. – 13. september verður mikið um að vera á Höfn þegar þing Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar fer fram. Þingið sækja Kiwanisfélagar víðs vegar að af Íslandi og Færeyjum og er það mikilvægur vettvangur fyrir starfsemi hreyfingarinnar.
Kiwanis eru alþjóðleg sjálfboðasamtök sem vinna að því að bæta heiminn með þjónustu í þágu barna. Kjörorð hreyfingarinnar er: „Hjálpum börnum heimsins.“
Kiwanisfélagar leggja sitt af mörkum til samfélagsins með fjölbreyttum verkefnum sem styðja við börn, fjölskyldur og nærsamfélagið. Um land allt starfa öflugir Kiwanisklúbbar sem bjóða nýja félaga velkomna.


Ef þú vilt láta gott af þér leiða, efla hæfni þína og þekkingu og um leið kynnast góðu fólki, byggja upp tengslanet og eignast nýja vini, þá gæti Kiwanis verið vettvangurinn fyrir þig.
Langar þig að vita meira? Hafðu samband við okkur á netfangið: kiwanis@kiwanis.is



