Uppbyggingarsjóður Suðurlands

0
716

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fyrri úthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2020. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.
Styrkveitingar skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu. Í flokki atvinnu og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmiðið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024 sem tók gildi um síðustu áramót. Umsækjendum er því bent á að kynna sér markmið og nýjar áherslur sjóðsins sem má finna á vef SASS. Mikilvægt er að kynna sér þetta ásamt úthlutunarreglum og matsþáttum sjóðsins.
Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einkaaðgangi verkefnastjóra. Ef umsóknin uppfyllir ekki þessi skilyrði, má búast við að hún verði ekki tekin til yfirferðar. Bendum við á að allir lögaðilar geta með einföldum hætti sótt um íslykil og rafræn skilríki.
Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, einnig má hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is.

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 3. mars 2020