
Í Sveitarfélaginu Hornafirði er mikill fjölbreytileiki sem ber að fagna og er hann mikilvægt verkfæri þegar kemur að frekari samfélagsþróun og uppbyggingu öflugs og lifandi samfélags.
Samkvæmt tölfræði sem tekin var saman í mars á þessu ári eru íbúar með erlent ríkisfang nú 34,83 prósent íbúa sveitarfélagsins, en nánari sundurliðun eftir póstnúmerum má sjá í gröfunum. Gröfin staðfesta það að mesta breytingin hefur verið í póstnúmerinu 781, þar sem erlendum fjölgaði um rúm 56%, en í 780 og 785 var fjölgunin minni.
Í sveitarfélaginu búa einstaklingar frá 49 löndum og eru flestir erlendir ríkisborgarar frá Póllandi, en næstflestir frá Rúmeníu. Rúmenar eru þó aðeins fjórða fjölmennasta þjóðarbrotið í póstnúmerunum 780 og 781, en næst fjölmennastir í 785, þar sem þeir eru einungis þremur einstaklingum færri en Pólverjar.
Það sem vekur ef til vill mesta athygli er að tölurnar sýna að fleiri íbúar með erlent ríkisfang búa í dreifbýli en í þéttbýli, alls 516 á móti 473. Þessar tölur staðfesta að fjölbreytileikinn nær víða um sveitarfélagið og takmarkast ekki eingöngu við stærsta byggðarkjarnann.
Rétt er að taka fram að tölurnar eru ef til vill ekki alveg hárnákvæmar, þar sem sumir sem flytja aftur til síns heimalands skrá sig ekki alltaf úr landi. Það er skiljanlegt þar sem því fylgir oft enginn beinn ávinningur og getur jafnvel auðveldað endurkomu síðar. Það helsta sem hægt er að gera til að bæta þetta er að hvetja atvinnurekendur til að minna starfsfólk á að skrá flutning þegar það flytur úr sveitarfélaginu og úr landi, enda gefa réttari tölur betri heildarsýn.



Tölurnar sýna breytingar, en þær segja líka sögu samfélags sem er stöðugt að þróast. Í Sveitarfélaginu Hornafirði býr fólk með ólíkan bakgrunn, reynslu og tungumál, en saman byggjum við eitt samfélag sem verður sterkast þegar öll fá að taka þátt í uppbyggingu þess. Við erum heppin að búa við svona mikinn fjölbreytileika og það er mikilvægt að virða hann og nýta þann styrk sem í honum felst.
Höfundur er verkefnastjóri fjölmenningar-, inngildingar- og jafnréttismála í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Aðsend grein
F.h. Velferðarsviðs
Anna Birna Elvarsdóttir



