Takk fyrir stuðninginn

0
976
Jón Áki ásamt Pálma í Nettó

Félagar í Kiwanisklúbbnum ÓS þakka fyrir þann stuðning og hlýhug sem Hornfirðingar sýndu með stuðningi sínum í jólatréssölu klúbbsins fyrir jólin. Þessi stuðningur hefur þegar verið sendur áfram til þeirra sem á þurftu að halda yfir hátíðirnar og vonum við að þetta framtak okkar með ykkar hjálp hafi gefið þeim sem á þurftu að halda, ástæðu til að brosa og njóta hátíðanna.
Við hvetjum foreldra með langveik börn til að kynna sér okkar starf og ræða við okkur um hvernig við gætum hjálpað. Kiwanisklúbburinn Ós sem og öll Kiwanishreyfingin hefur þarfir barna að leiðarljósi og við erum þakklátir fyrir allan þann stuðning sem við fáum í baráttunni.
Um hátíðarnar styrktum við með 850 þúsundum í Samfélagssjóð Hornafjarðar og lagði Nettó einnig til styrksins í sjóðinn. Einnig styrktum við fjölskyldu um 300.000 kr. en afrakstur jólatréssölu okkar núna í desember fór í þessa styrki.
Sérstakar þakkir fá dyggir bakhjarlar sem standa þétt við okkar starf og þar má sérstaklega nefna; Húsasmiðjuna, Flytjanda, Nettó, Sælgætisgerðina Freyju, H. Christensen, Mikael, Ajtel, Martölvuna, Rimmu, útgáfu Eystrahorns, Vélsmiðjuna Foss svo einhverjir séu nefndir. Það má sjá af þessari upptalningu að margir láta sig góðgerðarmál varða og styrkja starf okkar.
Til fróðleiks má geta að alþjóðahreyfing Kiwanis tekur virkan þátt í að hjálpa börnum heimsins, t.d. Kiwanis Children Fund sem vinnur að því að útrýma stífkrampa á heimsvísu í samstarfi með UNICEF, Píeta, BUGL og Samfélagssjóðurinn hér á Höfn ásamt fjölda annarra verkefna njóta stuðnings frá Ós.
Kiwanisklúbburinn Ós hvetur áhugasama að vera í sambandi við félaga um inngöngu í klúbbinn. Ekki má gleyma að stefnt er að stofnun kvennaklúbbs á Hornafirði og eru upplýsingar í Facebook hópnum Konur í Kiwanis Hornafirði.

Bestu þakkir fyrir hönd Kiwanisklúbbsins Óss.
Jón Áki Bjarnason forseti og félagar.