“Stories with bodies”

0
1062

Þann 25. febrúar síðastliðinn sýndu 6 nemendur úr FAS afrakstur tveggja mánaðar vinnustofu sem bar heitið “Stories with bodies”. Tess Rivarola var með umsjón með verkefninu og áttu nemendur að deila sambandi sínu við þjóðsögur með líkamstjáningu. Sýningin var mjög áhugaverð og gaman var að sjá hve nemendurnir voru skapandi í túlkun sinni. 28 manns mættu í Gömlu búð til að sjá afraksturinn. Sýningin samanstóð af hóp- og einstaklings gjörningum, töluðum orðum og hljóðum. Áhorfendur gátu í lok sýningar tekið þátt í gjörningnum og skrifað orð eða setningar úr þjóðsögum sem þau tengja við. Gaman var að sjá hve fólk tók sýningunni vel, og hvað nemendurnir stóðu sig vel. Mikilvægt er að ungt fólk fái tækifæri til að sinna skapandi listgreinum og sýna verk sín.
Þau sem tóku þátt í sýningunni voru: Ástrós Aníta Óskarsdóttir, Axel Elí Friðriksson, Daníel Snær Garðarsson, Karen Ása Benediktsdóttir, Arna Ósk Arnarsdóttir og Ísak Einarsson. Skrýmir Árnason sá um tónlist og Lind Völundardóttir setti upp sviðsmyndina og Tess leikstýrði. Aðrir sem aðstoðuðu við framkvæmd sýningarinnar voru Eyjólfur Guðmundsson, Eyrún Helga Ævarsdóttir, Jóhann Morávek og Steinunn Hödd Harðardóttir. Verkefnið var styrkt af SASS og FAS.