Ótrúlegt afrek ungra körfuboltaleikmanna.

Auglýsing

Nú um páskana heldur 7. flokkur Körfuknattleiksdeildar Sindra, skipaður fimm drengjum fæddum árið 2013 og tveimur drengjum fæddum 2014 á Scania Cup, sem kallað hefur verið Norðurlandamót félagsliða. Mótið hefur verið haldið frá árinu 1981 og er boðsmót fyrir sterkustu lið hvers lands fyrir sig. Á þetta mót er þeim liðum sem enda í efstu sætunum í Íslandsmótinu boðið til að keppa við sterkustu lið hinna Norðurlandanna. Mótið er haldið ár hvert í Södertalje í Svíþjóð, rétt utan við Stokkhólm.

Þessir afreksdrengir enduðu í 3. sæti í Íslandsmótinu 2025 og eru, eftir 3 umferðir í yfirstandandi móti, í 3. sæti á eftir aðeins Stjörnunni og KR, sem enduðu í efstu tveimur sætunum í síðasta móti. Það að við skulum eiga lið í efstu styrkleikaflokkum Íslandsmóts er gríðarlegt afrek, sérstaklega ef við mátum okkur við höfðatölu sem við landsmenn erum duglegir að gera við hin ýmsu tækifæri. Til dæmis má nefna að við endum ofar en Breiðablik sem kemur úr Kópavogi, en þar búa rúmlega 10 prósent þjóðarinnar en hér í sveitarfélaginu náum við að teljast 0,6 prósent af heildarmannfjölda landsins.[1]

Efri röð frá vinstri: Nebojsa Knezevic, Svavar Breki, Evahn, Andri Aron, Daníel Borgar
Neðri röð frá vinstri: Kolbeinn Darri, Elvar Þór, Garðar Logi

Þessir piltar hafa alist upp saman og myndað með sér einstakan liðsanda sem tekið er eftir af foreldrum annarra liða þegar keppt er á “túrnerningum” eins og kallað er, þegar mörg lið koma saman og keppa 4-5 leiki í riðlakeppni yfir eina helgi. Þar er oft komið að orði við okkur foreldra, af öðrum foreldrum, þjálfurum og einnig dómurum, og drengjunum hampað fyrir, ekki aðeins kurteisi, heldur sérstaklega hversu hvetjandi og jákvæðir þeir eru hver í annars garð og prúðir innan vallar sem utan. Við erum langt frá því að vera hávaxnasta liðið, en með hraða, leikni, útsjónarsemi og seiglu tekst drengjunum að sigrast á gríðarsterkum andstæðingum hvað eftir annað. (Að vera hávaxinn er algjörlega ofmetið að mati þess sem greinina skrifar og bara ávísun á bakverki og óþarfa mont, hraði sigrar hæð)

Drengirnir hafa verið duglegir að afla fjár fyrir ferðinni og viljum við senda lofsamlegar þakkir til allra þeirra sem nú þegar hafa stutt við bakið á þeim og ef einhverjir fleiri vilja bætast í hópinn þá má setja sig í samband við hvern sem er af  okkur foreldrunum, frjáls framlög móttekin með þökkum. Við munum reyna að gera fólki kleift að fylgjast með framgangi liðsins  meðan á ferðalaginu og keppni stendur og munum reyna að koma því á framfæri hvernig það fer fram á samfélagsmiðlum þegar nær dregur.

Við erum rík af hæfileikaríku fólki hér í sveitarfélaginu, öldnum sem ungum, hvetjum hvort annað og verum stolt af árangri annarra. Áfram Hornafjörður og ÁFRAM SINDRI!

[1] Tölur Hagstofunnar um mannfjölda frá 1. janúar 2025

Gunnar Örn Reynisson

Tags: