“Á einhver auka stoðmjólk? Hún er búin í búðinni.“
“Vantar einhvern?”
“Veit einhver um far úr bænum? Var að kaupa kassa af bleium sem ég þarf að koma austur“
–Fegurðin í litlum samfélögum.
Að búa í litlum bæ í fæðingarorlofi getur gefið hversdagslífinu allskonar áskoranir eins og dæmin hér að ofan sýna, en flest sjáum við frekar alla kostina sem eru sem betur fer margfalt fleiri. Hér langar okkur til þess að segja stuttlega frá lífinu í fæðingarorlofi hér á Höfn og öllu því sem maður getur tekið þátt í, sem er sérstaklega stílað inn á foreldra í fæðingarorlofi.
Foreldrar eru með reglulega hittinga á þriðjudögum á bókasafninu og á fimmtudögum í safnaðarheimilinu í Hafnarkirkju. Stundum mæta fáir en oftast margir og það er alltaf jafn gaman. Þetta eru tímar í vikunni þar sem maður fær tækifæri til að hitta aðra og komast aðeins út úr húsi og spegla sig við aðra sem eru í sömu aðstæðum og maður sjálfur. Tíminn með litlu barni getur verið einangrandi og einmanalegur, þrátt fyrir að tíminn fljúgi áfram og maður er aldrei einn. Að mæta á foreldrahittinga er frábært tækifæri til þess að eignast nýja vini og er vettvangur til að kynnast fólki sem maður annars hefði ekki fengið tækifæri til.

Líkamsræktarstöðin Fenrir Elite hefur sl. mánuði verið með mömmu-fit tíma tvisvar í viku sem hafa verið vel sóttir af allskonar mömmum það er gott að hreyfa sig saman og finna líkamann styrkjast.
Við viljum hvetja alla foreldra í fæðingarorlofi til þess að koma sér inn á Messenger spjallið “Orlofsforeldrar á Höfn” þar sem við mælum okkur mót í göngutúra, deilum ráðum, áhyggjum og hlæjum saman. Til dæmis er hægt að fá starfsfólk í meðgöngu- og ungbarnavernd til að aðstoða við að koma sér þangað inn ef þú þekkir engan sem nú þegar er í spjallinu.
Ef þú veist af foreldrum í fæðingarorlofi í sveitarfélaginu, þá endilega hnipptu í viðkomandi og bentu þeim á þessa grein.

Að lokum viljum við minna foreldra á að kynna sér vel réttindi sín. Dæmi um styrki sem foreldrar geta átt rétt á:
- Dvalarstyrkur fyrir barnshafandi foreldri – Vinnumálastofnun
- Fæðingarstyrkur – Stéttarfélög
- Foreldrastyrkur – Kvenfélagið Vaka
- Ferðastyrkir – Sjúkratryggingar Íslands
Sjáumst!
Fyrir hönd orlofsforeldra á Höfn, Anna Ragnarsdóttir Pedersen



