
Fyrirhuguð vetrarþjónusta á vegum 99 og 987 gera ráð fyrir því að vegirnir séu þjónustaðir annars vegar frá kl 8:00 og hinsvegar 9:30 – 20:30 alla daga nema þriðjudaga og laugardaga þar sem engin vetrarþjónusta er fyrirhuguð þá daga.
Það hlýtur að vekja spurningar hjá íbúum í dreifbýli sveitarfélagsins að fyrirhuguð vetrarþjónusta tekur ekki tillit til þess að skólaakstur hefst mun fyrr enda eiga börnin að vera mætt í skólann kl 8:10 – og það á líka við um þriðjudaga. En börn í dreifbýlinu þurfa víst líka að sækja skóla á þeim dögum. Börn í dreifbýlinu eru komin í skólabílana um klukkan sjö á morgnana.
Þarna erum við ekki að tala um vegi sem eru lítið notaðir eða einhverja aukavegi sem fólk getur auðveldlega sleppt að aka um. Þetta eru vegir sem íbúar nota daglega til og frá vinnu og þar fer reglubundinn skólaakstur fram með börn innan sveitarfélagsins.
Á virkum dögum aka skólabílarnir um vegina allt að 12–14 sinnum á dag.
Það er því eðlilegt að spyrja: Hvernig getur það talist eðlilegt fyrirkomulag að engin vetrarþjónusta sé á þriðjudögum þegar skólabíllinn þarf að fara allt að 14 ferðir um vegina þann dag?

Íslensk vetrarfærð tekur ekki mið af vikudögum. Snjókoma, hálka og skafrenningur geta gert vegina varhugaverða á skömmum tíma. Það verður því að taka mið af raunverulegri notkun veganna þegar vetrarþjónusta er skipulögð.
Það hlýtur að vera sérstaklega mikilvægt þegar um skólaakstur barna er að ræða.
Ekki er verið að krefjast þess að vegirnir séu alltaf auðir og þurrir. Það er hins vegar eðlileg krafa að öryggi barna og skólaakstur hafi vægi þegar ákveðið er hvaða daga vegirnir eru þjónustaðir.
Einnig er spurning hvernig bílstjóri skólabílsins á að bregðast við ef veruleg snjókoma eða hálka verður á þriðjudegi.
Á skólabílstjórinn að treysta á að færðin verði góð, að þetta sleppi? Á hann að kalla út þjónustu þegar vandamálið er komið upp? Og hver tekur þá ákvörðun um úrbætur?
Þetta eru ekki óþarfa spurningar. Þetta snýst um öryggi barna og annarra vegfarenda, ábyrgð og raunhæft skipulag vetrarþjónustu.
Vegagerðin þarf því að endurskoða fyrirhugað fyrirkomulag á vegum 99 og 987 og taka sérstaklega tillit til umfangs skólaakstursins sem og annars aksturs.
Það er erfitt að sjá rökin fyrir því að spara í vetrarþjónustu. Og þá sérstaklega með tilliti til þess að skólabíllinn þarf að fara 12–14 ferðir með börn um þessa vegi flesta virka daga.
Öryggi vegfarenda á ekki að ráðast af því hvaða vikudagur er.



