Samþykkt. Undirritað. Framkvæmt?

Á hverju ári, frá 25. nóvember til 10. desember, sameinast Soroptimistar um allan heim í 16 daga vitundarvakningu gegn kynbundnu ofbeldi undir yfirskriftinni Roðagyllum heiminn – Orange the World. Appelsínuguli liturinn táknar von um bjartari framtíð án ofbeldis og minnir okkur á að ofbeldi er ekki einkamál heldur samfélagslegt mein sem kemur okkur öllum við.

Auglýsing

Soroptimistaklúbbur Austurlands hefur um árabil tekið þátt í átakinu með fræðslu og sýnilegri vitundarvakningu í nærsamfélaginu. Í ár viljum við leggja áherslu á að þekkja rauðu aðvörunarljósin um ofbeldi og minna á mikilvægi þess að samþykktum og skuldbindingum sé fylgt eftir með raunverulegum aðgerðum.

Þekkjum rauðu ljósin

Ofbeldi birtist í mörgum myndum. Það getur verið líkamlegt, andlegt, kynferðislegt, fjárhagslegt eða stafrænt. Stjórnsemi, einangrun, hótanir og stöðugt eftirlit geta verið fyrstu merki þess að eitthvað sé að.

Stafrænt ofbeldi er vaxandi áhyggjuefni. Það getur falist í því að fylgjast með síma eða tölvu annarrar manneskju, senda ógnandi skilaboð eða dreifa persónulegu og kynferðislegu myndefni án samþykkis. Með þróun gervigreindar hafa einnig skapast nýjar leiðir til að misnota og falsa myndefni.

Fræðsla og opin umræða eru mikilvægar forvarnir. Við þurfum að ræða við börn og ungmenni um heilbrigð samskipti, gagnkvæma virðingu, mörk og öryggi á netinu. Á vefnum 112.is má finna upplýsingar um birtingarmyndir ofbeldis og hvert hægt er að leita eftir aðstoð.

Mannréttindi eru ekki forréttindi

Árið 2011 undirritaði Ísland Istanbúlsamninginn, samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi. Hann var fullgiltur hér á landi árið 2018 og felur í sér lagalega bindandi skuldbindingar.

Samningurinn byggist á fjórum meginstoðum: forvörnum, vernd þolenda, saksókn og samræmdri stefnu stjórnvalda. Hann kveður meðal annars á um fræðslu og þjálfun fagfólks, aðgengi að viðeigandi aðstoð og vernd þolenda. En samningur á pappír breytir litlu nema honum sé fylgt eftir í framkvæmd.

Í landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum 2026–2030 eru skilgreindar 25 aðgerðir sem meðal annars snúa að fræðslu, þjónustu við þolendur, þjálfun fagfólks og bættri gagnaöflun. Samkvæmt fyrirliggjandi stöðuyfirliti eru flestar aðgerðirnar enn á byrjunarstigi. Því þurfum við að spyrja: Er starfsfólk skóla, heilbrigðisþjónustu og lögreglu nægilega þjálfað til að þekkja ofbeldi? Er aðstoð aðgengileg öllum, óháð búsetu?

Þessar spurningar eiga sérstaklega erindi við okkur á landsbyggðinni, þar sem fjarlægðir og fámenn samfélög geta skapað auknar áskoranir. Rétturinn til öryggis og verndar á að vera sá sami, hvar sem við búum.

Roðagyllum Austurland – tökum höndum saman

Við getum öll lagt okkar af mörkum. Foreldrar geta rætt við börn sín um heilbrigð samskipti og öryggi á netinu. Skólar, vinnustaðir og stofnanir geta stuðlað að fræðslu og skapað umhverfi þar sem ofbeldi og áreitni eru ekki liðin. Við getum hlustað, sýnt stuðning og hjálpað þeim sem þurfa aðstoð. Ábyrgðin á ofbeldi liggur alltaf hjá þeim sem beitir því, aldrei hjá þolandanum.

Soroptimistaklúbbur Austurlands hvetur íbúa, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög til að taka þátt í 16 daga átakinu. Lýsum upp byggingar með appelsínugulu ljósi, skreytum umhverfi okkar og vekjum athygli á málstaðnum. Hver sýnileg aðgerð getur orðið tilefni að mikilvægu samtali. En baráttunni lýkur ekki 10. desember. Hún þarf að halda áfram allt árið, á heimilum, í skólum, á vinnustöðum og hjá stjórnvöldum.

Mannréttindi eru ekki forréttindi. Öryggi, virðing og frelsi frá ofbeldi eru grundvallarréttindi allra. Við skulum því ekki aðeins spyrja hvort alþjóðlegir samningar hafi verið samþykktir og undirritaðir, heldur einnig hvort staðið hafi verið við loforðin.

Samþykkt. Undirritað. Framkvæmt?

Segjum stopp – stöðvum ofbeldið!

Aðsend grein: Sigríður Kr. Gísladóttir
fyrir hönd Soroptimistaklúbbs Austurlands

Tags: