Fyrir fimm og hálfu ári fluttu grísku hjónin Ilektra Mitsopoulou, kölluð Elektra og George Tsafarakis til Íslands. Þau hófu Íslandsævintýrið sitt í Vík í Mýrdal en hafa undanfarin ár búið í Reykjavík. Nú liggur leiðin austur á Höfn, þar sem Elektra tekur við starfi verslunarstjóra nýrrar Krónuverslunar. Elektra segir dvölina í Vík hafa kennt sér að meta lífið í litlu samfélagi. „Ég áttaði mig á því hvað ég hef saknað þess að tilheyra litlu samfélagi eins og þegar við bjuggum í Vík. Ég hlakka mjög mikið til þess.“

Elektra segir að þeim hafi reynst erfitt að sjá fyrir sér framtíðina í Grikklandi, þar sem laun séu lág miðað við framfærslukostnað og tækifæri til að byggja upp gott líf geti verið takmörkuð. Hugmyndin um að flytja til Íslands kviknaði þegar ættingi George, sem starfaði hjá Krónunni í Vík, sagði þeim frá góðum starfsaðstæðum og lífsgæðum hér á landi. „Það vakti áhuga okkar og við fórum að ræða alvarlega um að flytja til Íslands. Að lokum ákváðum við að láta slag standa og sjá hvert ævintýrið myndi leiða okkur.“ Aðspurð hvað þeim þyki best við að búa á Íslandi nefnir Elektra góðar starfsaðstæður, jafnvægið í daglegu lífi og að þurfa ekki að búa við stöðugt álag. Þau kunni vel að meta að finna að framlag þeirra skipti máli og að geta sinnt starfinu af áhuga og metnaði.

Elektra er verslunarstjóri í Krónunni

Aftur saman í vinnunni

Hjónin byrjuðu bæði sem almennir starfsmenn hjá Krónunni í Vík og sinntu þar fjölbreyttum verkefnum. Elektra varð síðar vaktstjóri og eftir flutningana til Reykjavíkur árið 2023 störfuðu þau bæði sem vaktstjórar, en í sitt hvorri versluninni. Hún varð aðstoðarverslunarstjóri árið 2025 og hefur síðan starfað í Krónunni í Mosfellsbæ.

Auglýsing

Á Höfn munu þau vinna saman á ný eftir þriggja ára hlé. Elektra segir þau hafa haft gaman af samstarfinu í Vík.

„Við höfum ólíka styrkleika og vitum bæði hvað hitt getur lagt til verkefnisins. Mér finnst við ná mjög vel saman í vinnunni og að við getum bætt hvort annað upp.“

Þótt henni líði vel í Reykjavík sé spennandi að fá tækifæri til að taka við nýrri verslun og leiða uppbyggingu hennar frá upphafi.

Elektra og George á Jökulsárlóni

Saknar þess að tilheyra litlu samfélagi

Höfn er ekki alveg ókunnugur staður fyrir hjónin. Þau komu fyrst til bæjarins árið 2019 þegar þau voru á ferðalagi um Ísland. Þá stoppuðu þau stutt, fengu sér humar á veitingastað og héldu ferðinni áfram. Þau heimsóttu bæinn aftur nýlega til að skoða nýju verslunina. Elektra segir að henni hafi strax fundist Höfn hlýlegur og vinalegur staður.

„Ég áttaði mig líka á því hvað ég hef saknað þess að tilheyra litlu samfélagi eins og þegar við bjuggum í Vík. Ég hlakka mjög mikið til þess.“

Utan vinnunnar hefur Elektra gaman af ferðalögum, hreyfingu og ljósmyndun. Henni þykir skemmtilegt að uppgötva nýja staði og kynnast ólíkum menningarheimum. Hjónin reyna líka að gefa sér tíma fyrir stefnumót og notalegar stundir saman, en kunna ekki síður að meta kvöld heima með köttunum, góðum mat og kvikmynd.

Bossi og Bambus með í för

Með hjónunum til Hafnar verða kettirnir Bossi og Bambus, sem þau ættleiddu nýlega frá Kattholti. Elektra hefur alist upp með dýrum og segir heimilið ekki alveg vera heimili án þeirra. Þau misstu fyrri köttinn sinn undir lok árs 2024 og þurftu þau tíma áður en þau voru tilbúin að ættleiða aftur. Þegar flutningarnir á Höfn voru ákveðnir fóru þau að hugsa um það sem nýtt upphaf. Þannig komu Bossi og Bambus inn í líf þeirra.

Elektra segist helst hafa áhyggjur af bílferðinni austur með kettina en telur að þeim eigi eftir að líða vel þegar komið verður á nýja heimilið. Það sem hún hlakkar mest til við flutningana er að verða aftur hluti af litlu samfélagi.

„Mér finnst dýrmætt að búa á stað þar sem maður fær tækifæri til að kynnast fólki, byggja upp tengsl og finna að maður tilheyri samfélaginu.“

Greinarhöfundur: Vaka Sif Tjörvadóttir

Tags: