Daði við kennslu í tannlækningum. Mynd: Domus Dentis
Daði við kennslu í tannlækningum. Mynd: Domus Dentis

Tímamót eru framundan í tannlæknaþjónustu í sveitarfélaginu. Héðinn Sigurðsson lætur  af störfum eftir að hafa sinnt þjónustunni um árabil. Flestir Hornfirðingar hafa líklega sest í stólinn hjá Héðni á undanförnum árum og er ég nokkuð viss um að ég geti þakkað honum hér með fyrir hans störf fyrir hönd okkar allra. Nú leikur mörgum forvitni á að vita hver tekur við og því höfðum við samband við nýjan tannlækni og spurðum hann spjörunum úr.

Auglýsing

Daði Hrafnkelsson er uppalinn á Breiðdalsvík. Eftir menntaskóla lauk hann kandídatsgráðu frá Háskóla Íslands og hóf störf í Kópavogi að námi loknu, árið 2005. Hann flutti til Danmerkur árið 2010 og varð hluthafi í tannlæknastofunum Godt Smil. Þegar hann hóf störf þar voru stofurnar þrjár talsins en þegar hann ákvað að flytjast aftur heim voru þær orðnar 46, staðsettar víða um Danmörku. Árið 2015 lauk Daði mastersgráðu frá Goethe-Institut í Frankfurt. Daði er í sambúð með Möggu og saman eiga þau stóra fjölskyldu, á milli þeirra eru sex börn, tengdabarn, hestar og hundur.

Daði hefur lengi haft tengsl við Hornafjörð. Þegar hann sá að Héðinn hafði auglýst stofuna til sölu kviknaði áhuginn og hann ákvað að skoða málið nánar. Hann segist eiga bæði ættingja og vini á svæðinu og líti á þetta sem gott tækifæri til að komast meira austur, kynnast sveitarfélaginu betur og fólkinu auðvitað.

Daði rekur einnig tannlæknastofuna Domus Dentis í Kópavogi og kemur því ekki til með að flytja sjálfur austur. Á næstunni mun hins vegar tannlæknir flytja á Höfn og sinna Domus Dentis Hornafirði í fullu starfi. Sá tannlæknir hefur tengsl við Höfn og hefur áður starfað hjá Héðni. Daði mun sjálfur koma reglulega austur og sinna ákveðnum verkefnum á stofunni. Auk þess munu tannlæknar og tannsmiðir sem starfa með honum í Kópavogi koma austur með reglulegu millibili. 

Aðspurður hvort breytingar verði á rekstri stofunnar, tækjabúnaði eða öðru segir Daði: „Héðinn er náttúrulega búinn að gera þetta vel, en það fylgja nýju fólki alltaf nýjar áherslur.“ Gert er ráð fyrir nokkrum breytingum á stofunni og talsverður nýr tækjabúnaður verður tekinn í notkun, meðal annars röntgentæki, þrívíddarskanni og þrívíddarprentari. Þessi tæki munu að sögn Daða auka skilvirkni mikið og einfalda alla tannsmíði.

Einnig er stefnt að því að vera með færanlegan tækjabúnað þannig að hægt verði að veita þjónustu á hjúkrunarheimilinu og sinna þeim sem eiga erfitt með að komast á stofuna. Daði segir mikilvægt að þjónustan sé stöðug, að opið sé allt árið um kring og að sem oftast verði tveir tannlæknar að störfum. Þannig megi minnka biðlista. Stefnt er að því að bjóða upp á alla almenna tannlæknaþjónustu, nema helst tannréttingar.

Að lokum spurðum við Daða út í áhugamálin hans og sagði hann útivist, fjallgöngur og hesta vera stóran hluta af áhugamálum fjölskyldunnar. Stangveiði og skotveiði koma einnig sterk inn. Daði segist spenntur fyrir því að koma oftar austur, enda vanur litlum samfélögum og kunni vel við þau. Náttúran í kring skemmi heldur ekki fyrir og hann hlakki til að sinna áhugamálunum í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Eystrahorn óskar Daða velfarnaðar og vonar að áframhaldandi tannlæknaþjónusta í sveitarfélaginu gangi sem best. Um leið þökkum við Héðni Sigurðssyni kærlega fyrir hans störf í þágu Hornfirðinga.

Frá ritstjórn
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir

Tags: