Starfsfólk og viðskiptavinir Nettó fyrir auðsýnda þolinmæði og skilning við yfirstandandi framkvæmdir. Sem næstum daglegur viðskiptavinur hefur mér fundist svo gott að finna fyrir þessum sameiginlega skilning á þeirri óreiðu sem ríkir í búðinni á meðan framkvæmdum stendur. Mér finnst þetta líka næstum vera samfélagslegt stuðningsverkefni!  Kona fer ósjálfrátt að tala meira við fólk í búðinni  því jú, hver hefur ekki mætt í búðina og spurt næsta kunnuglega andlit: Hvar skyldi nú osturinn vera í dag? – Með bros á vör og smá léttri lund yfir að deila því sameiginlega verkefni að finna út úr innkaupum dagsins. 

Auglýsing

Aðsend grein
Helga Árnadóttir

Tags: