
Eins og flestir vita þá verða hin hefðbundnu „leikjanámskeið“ Sindra ekki í boði í sumar. Í staðinn hefur sveitarfélagið leitað eftir samstarfi við ýmsa aðila varðandi allskonar námskeið og fjölbreyttar frístundir fyrir börn. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytt og spennandi starf með ólíkum aðilum og leyfa sem flestum að njóta sín, börnum og fullorðnum. Endanlega niðurröðun námskeiða og fyrirkomulags verður ekki ljóst fyrr en líður á maímánuð. Þá verður dagsskráin auglýst á www.hornafjordur.is og mun öll skráning fara fram í gegnum Abler.
Námskeiðin fyrir 1.-4. bekk verða klukkan 9:00-12:00 á morgnana. Boðið verður upp á „gæslu“ eða frístund í Kátakoti milli kl. 8:00-9:00 á morgnana og aftur kl. 13:00-16:00. Áhersla verður á frjálsan leik og góðan félagsskap í og við Kátakot. Boðið verður upp á fylgd með börnum frá gæslu á námskeiðssvæði á morgnana og á íþróttaæfingar eftir hádegi.
Sumarstarfið í Þrykkjunni fyrir 5.-7. bekk milli kl. 10;00-15:00 verður með gjörbreyttu sniði og færist starfsemin að mestu út á svæði aftan við Krónubúðina. Starfið mun byggja á sjálfbærni og sjálfstæðum leik en boðið verður upp á skólagarða, kofabyggð, hjólabraut, sandhauga og ýmislegt fleira. Þetta starf verður einnig auglýst nánar síðar.
Vinnuskólinn verður svo að sjálfsögðu á sínum stað.
Eins og þið sjáið er ýmislegt spennandi í farvatninu og áfram verður tekið við öllum góðum hugmyndum. Saman stuðlum við að fjölbreyttu og uppbyggilegu sumarstarfi.

Aðsend grein
Ágústa Margrét Arnardóttir
Frekari upplýsingar gefur Ágústa Margrét Arnardóttir agustam@hornafjordur.is sem leysir Emil Morávek af næstu mánuði sem verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviði.




