Stefanía og Eyrún stóðu vaktina fyrsta daginn
Stefanía og Eyrún stóðu vaktina fyrsta daginn

Sumardagurinn fyrsti tók aldeilis vel á móti okkur þegar við mættum til að opna FLÓ fataverslunina okkar í húsnæði Rauða krossins austast í Björgunarmiðstöðinni að Sæbraut 5 á Höfn. Loksins erum við komin með fast húsnæði og rými fyrir sölu á notuðum fatnaði, skóm og fleiru. Í rýminu okkar erum við líka með skrifstofu, barnahorn, sófaslökunarhorn, vinnuborð ásamt sameiginlegu rými með Frumherja eins og wc, kaffistofu og ræstikompu. Verslunin FLÓ verður opin á fimmtudögum kl 16-18 og fyrsta laugardag í hverjum mánuði kl 14-16. Í framtíðinni munum við svo skoða hvort verði meiri opnun. Fatamóttaka verður í Gárunni eins og verið hefur og fylgir opnunartíma hennar, þaðan koma fötin til okkar. Við biðjum ykkur að fara ekki með fatnað, textíl og skó í Hirðingjana. Í framtíðinni verðum við með opna tíma sem verða auglýstir síðar fyrir ýmsa starfsemi eins og námskeið, fundi, verkefni, hittinga o.fl. Þeir sem hafa áhuga á að gerast sjálfboðaliðar geta skráð sig á síðu Rauða krossins. Verkefnin sem deildin okkar er með núna eru neyðarvarnir, sálrænn stuðningur, FLÓ fataverslun, Kvennakraftur, íslensku þjálfun, skyndihjálp og prjónað til góðs. Okkur vantar alltaf sjálfboðaliða og allir eru velkomnir til starfa með okkur. Við hlökkum til framtíðar með ykkur.

Auglýsing
Stefanía og Eyrún stóðu vaktina fyrsta daginn

Aðsend grein
Stjórn Rauða kross deildar Hornafjarðar  

Tags: