Náttúrulögmálin: Upplestrarferðin

0
201

Í tilefni útgáfu skáldsögunnar Náttúrulögmálin, sem kom út hjá Máli og menningu þann 19. október síðastliðinn, ætlar höfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl að haga sér einsog sveitaballapopparinn sem hann hefur alltaf dreymt um að vera og rúnta eftir öllum fjörðum, dölum, eyrum og annesjum með skemmtidagskrá og skottið fullt af bókum. Hann verður á Höfn í Hornafirði ásamt tónlistarmanninum gímaldin þann 6. nóvember kl. 21, á veitingastaðnum Ottó, en daginn áður, 5. nóvember, verða þeir félagar líka á Hótel Framtíð á Djúpavogi.

Á tæpum mánuði mun Eiríkur koma við á hátt á fjörutíu stöðum um land allt – knæpum, bókasöfnum, veitingastöðum, kaffihúsum, byggðasöfnum – og lesa upp úr Náttúrulögmálunum, segja frá sögusviðinu, hitta lesendur, sýna gamlar ljósmyndir, svara spurningum, strauja kort og árita bækur. Túrinn hefst 21. október og fyrstu vikuna sinnir Eiríkur sínum heimasveitum á Vestfjörðum áður en hann heldur réttsælis um landið.

Hægt er að ná í Eirík í síma 845-2685, á netfanginu eon@norddahl.org eða í gegnum messenger
(https://www.facebook.com/eirikur.orn.norddahl).