
Morávekpallurinn verður í ár haldinn í níunda sinn, en hann var fyrst haldinn á Humarhátíð árið 2017. Síðan þá hefur pallurinn orðið að skemmtilegum hluta hátíðarinnar, þar sem tónlist, myndlist, matur og mannlíf mætast í afslappaðri stemningu.
Hugmyndin að baki Morávekpallinum er einföld, að koma saman, hlusta á tónlist og skemmta sér. Í ár stígur hljómsveitin Látún á pallinn. Látún er sex manna hljómsveit, skipuð fjórum blásurum, trommara og bassaleikara. Hljómsveitin leikur frumsamin lög og hefur tónlistinni verið lýst sem dansvænni gleðitónlist þar sem spilagleði og hrynþokki eru í fyrirrúmi.
Eins og áður verður myndlist einnig hluti af dagskránni. Listamaðurinn að þessu sinni er Birna Jódís Magnúsdóttir, sem verður með verk sín til sýnis á pallinum og til sölu. Þannig fær listin sitt rými samhliða tónlistinni og gestir geta notið fjölbreyttrar dagskrár í notalegu umhverfi.
Morávekpallurinn er haldinn í samstarfi við Humarhátíðarnefndina og með stuðningi fyrirtækja í samfélaginu. Þau fyrirtæki sem styrkja pallinn að þessu sinni eru Goðaborg ráðgjöf, Króm og Hvítt, Verbúðarbarinn, Eystrahorn, Pakkhús Restaurant, Horn Brugghús og Díma ehf. Enn er möguleiki að styrkja verkefnið og eru framlög frjáls.
Morávekpallurinn verður laugardaginn 27. júní kl. 18:00 og stendur til kl. 20:00. Boðið verður upp á matarsmakk, kjúklingasúpu frá Ghana og kjúklingavængi á grillinu.
Allt fyrir gamanið.

Aðsend grein
Kristín G. Gestsdóttir



