
Síðastliðið ár í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu hefur verið litríkt og stútfullt af skemmtilegum tónleikum. Við fluttum starfsemi okkar aftur í endurbættan Sindrabæ og erum enn að klára að koma okkur fyrir. Eins og svo margir vita hefur biðin eftir hljóðkerfi verið löng og ströng, en við sjáum nú loks fyrir endann á því. Fjölmörg samspil og hljómsveitir hafa myndast, bæði innan og utan veggja Tónskólans. Ný lúðrasveit hefur hafið störf og samanstendur hún af nemendum í 3.-10.bekk sem og nokkrum kennurum Tónskólans sem tóku sig til og slógust í hópinn, þrátt fyrir litla sem enga kunnáttu á blásturshljóðfæri.
Söngkennsla hófst í september 2025 hjá okkur í Tónskólanum. Björg Blöndal sér um söngkennslu og hefur hún bæði verið með söngnámskeið fyrir nemendur grunnskólans sem og einkatíma fyrir fullorðna. Aðsókn í söng hefur farið fram úr öllum okkar væntingum og hefur söngkennslan fengið gríðarlega góðar undirtektir.
Söngkennslan í vor snerist að miklu leyti um undirbúning á stórum tónleikum sem haldnir voru í Sindrabæ þann 20. maí síðastliðinn. Fram komu 30 frábærir söngvarar á öllum aldri sem sungu lög eftir einn af okkar ástsælustu tónlistamönnum, Magnús Eiríksson. Hljómsveit kennara Tónskólans, sem nemendur í 3. bekk gáfu nafnið Klikkuðu Kóalabirnirnir, spilaði undir hjá söngnemendum á tónleikunum. Hljómsveitina skipa; Eymundur Ragnarsson á trommur, Hörður Alexander Eggertsson á hljómborð, Jóhann Morávek á rafbassa og Þorkell Ragnar Grétarsson á gítara. Hljóðmenn voru Emil Morávek og Pálmi Geir Sigurgeirsson, tónlistarstjóri tónleikanna var Björg Blöndal. Aðsóknin var mikil og fylltist Sindrabær af gestum sem mættu til að hlusta á yndislega tónlist Magga Eiríks. Á tónleikunum heyrðum við lög eins og Þorparinn, Draumaprinsinn, Komdu í partý, Ég er á leiðinni og svo endaði showið á öllum 30 söngnemendum saman uppi á sviði að syngja Gleðibankann.


Við héldum samtals 4 söngtónleika í vetur í Sindrabæ og stefnan er að halda áfram á svipuðum nótum á næsta skólaári og hafa eina stóra tónleika á hvorri önn. Á skólaárinu 2026-2027 verður áfram boðið upp á söngnámskeið fyrir nemendur í 3.-10. bekk, en við ætlum einnig að bjóða nemendum í 7. bekk og upp úr að sækja einkatíma í söng. Þetta á ekki einungis við um börn á grunnskólaaldri, heldur fyrir alla þá sem hafa áhuga að sækja söngnám.
Í Tónskólanum er kennt á fjölda hljóðfæra; gítar, bassa, píanó/hljómborð, trommur, harmónikku, klarinett, þverflautu, trompet, saxófón, básúnu, horn og svo auðvitað söng.
Það er ekkert aldursþak í tónlist og hvetjum við alla sem hafa áhuga á tónlistarnámi (3. bekk og eldri) að sækja um hjá okkur í Tónskólanum, hvort sem þið eruð byrjendur eða lengra komin. Skólaslit fóru fram þriðjudaginn 26. maí.
Litla samfélagið okkar í Tónskólanum er yndislegt og viljum við þakka öllum nemendum, aðstandendum og tónleikagestum fyrir frábært tónlistarár og hlökkum til komandi tíma!




