Matarauður Suðurlands

0
601

Matarauður Suðurlands er nýtt matartengt verkefni hjá Markaðsstofu Suðurlands unnið í samvinnu við Matarauð Íslands.
„Við erum að greina landshlutann út frá nokkrum mataráttavitum og draga þannig fram þau hráefni sem framleitt er á hverju svæði eða er nýtt í matvælaframleiðslu ásamt helstu matarhefðum innan viðkomandi radíusar. Ef fólk hefur skemmtilegar sögur um matarhefðir á sínu svæði má endilega heyra í okkur“ Segir Helga sem er yfir verkefninu.
Stefnt er á að halda vinnustofur með matreiðslumönnum í maí ef aðstæður leyfa og fara í hugmyndavinnu við nýsköpun og vöruþróun í matvælaframleiðslu og nýtingu hráefnis.
„Markmiðið er að endingu að búa til góðan efnis- og myndabanka sem aðstoðar matreiðslufólk við að draga fram og kynna allt það sem matarauður Suðurlands hefur upp á að bjóða, allt frá framleiðslu til framreiðslu.“
Suðurland er auðugt að fjölbreyttu hráefni, hvort sem er af sjó eða landi og mun verkefnið ekki aðeins styrkja stoðir undir ferðaþjónustuna heldur einnig landbúnaðinn og sjávarútveginn.
“Með því að draga enn betur fram þær matarhefðir sem eru og hafa verið á Suðurlandi ásamt því að kortleggja þá matvælaframleiðslu sem á sér stað á Suðurlandi verður komin heildræn mynd yfir þann fjölbreytileika matarauðs sem þessi stóri landshluti hefur upp á að bjóða. Út frá því verður hægt að vinna meira og markvissara í vöruþróun og nýsköpun í matvælaframleiðslu sem og ímyndaruppbyggingu svæðisins.“
Fyrir áhugasama og þá sem vilja senda sögur um mat og svæðisbundnar matarhefðir á Suðurlandi má hafa samband við Helgu Lucie tengilið verkefnis á helga@south.is