Heilsugæslan og sjúkraflutningar á Höfn færist yfir til HSU

0
1024

Heilbrigðisráðherra hefur falið Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) að taka við ábyrgð og rekstri heilbrigðisþjónustu á Höfn í Hornafirði. Yfirfærsla á rekstri heilsugæslunnar og sjúkraflutninga mun taka gildi frá og með 1. apríl n.k.
Íbúar á svæðinu munu ekki finna fyrir þessum breytingum þar sem þjónustan verður óbreytt en vakin er athygli á að símanúmer breytast. Nýtt aðalnúmer heilsugæslu HSU á Höfn verður 432-2900. Ef hringt er í gömlu númerin koma fram skilaboð um nýja símanúmerið. Jafnframt eru að finna upplýsingar um þessar breytingar á heimasíðu HSU. Áfram skal hringt í 112 sé um slys eða alvarleg veikindi að ræða og 1700 númerið gildir fyrir allt landið áfram.
Framkvæmdastjórn HSU fagnar því að nú er heilsugæslan og sjúkraflutningar á Höfn formlega orðin hluti af Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Við hlökkum til samstarfsins og erum bjartsýn á að þessar breytingar muni verða til góða bæði fyrir starfsmenn og íbúa á Höfn í Hornafirði.

Díana Óskarsdóttir,
Forstjóri HSU