Leit að postulíni – sýning í Svavarssafni

0
2270
Frá vinstri: Eyrún Helga forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Brynhildur Pálsdóttir hönnuður, Ólöf Erla Bjarnadóttir keramiker, Snæbjörn Guðmundson jarðfræðingur og Hanna Dís safnvörður

Margt var um manninn þegar sýningin “Leit að postulíni” var opnuð föstudaginn
22. september í Svavarsafni. Brynhildur, Ólöf Erla og Snæbjörn hafa unnið saman í yfir ár að verkefninu. Verkefnið er í grunninn rannsókn á þeim möguleikum og hindrunum sem felast í nýtingu íslenskra jarðefna til að búa til postulín. Kveikjan að leitinni var saga postulíns, áhrif þessa sérstæða efnis á menningu okkar og hvernig það dreif áfram linnulausar tilraunir og tækniframfarir. Þessi þróun leiddi til gríðarmikillar útbreiðslu postulíns, sem er í dag órjúfanlegur hluti af okkar daglega lífi.
Tilraunir með leirvinnslu á Íslandi eru afar nýlegar miðað við flesta aðra stóra menningarheima sem unnið hafa með leir í árþúsundir. Þegar vinnsla postulíns hófst í Danmörku á síðari hluta
18. aldar munaði þó ekki miklu að Ísland hefði fengið hlutverk í þeirri hröðu iðnþróun sem þá átti sér stað í Evrópu, en ekkert varð úr því.
Í verkefninu skoðum við sögu postulíns og þann sess sem jarðefnin í kringum okkur skipa í menningu okkar og samfélagi. Við leiðum sjaldan hugann að því hvaðan efnin koma sem við teljum jafnvel sjálfsögð í okkar daglega lífi. Að baki efnunum liggur þó aldalöng þróun, eins konar framvinda í sambandi manns og náttúru, keyrð áfram af þrotlausri forvitni mannsins sem sífellt leitast við að umbreyta áður ónýtanlegum þáttum náttúrunnar.
Leit að postulíni er drifin áfram af þessari sömu forvitni og þrá eftir umbreytingu, þar sem við tökum efnin úr náttúrulega samhengi sínu og gefum þeim nýtt hlutverk. Er hægt að búa til postulínsbolla úr íslensku grjóti? Í verkefninu eru notuð jarðefni víðsvegar af landinu, t.d. Suðausturlandi, en granít frá Slaufrudal í Lóni skipar mikilvægan sess í sýningunni. Frekari upplýsingar um verkefnið má sjá á
www.porcelain.is
Við sama tilefni var opnuð sýning á munum úr keramíki úr geymslum Byggðarsafns Hornafjarðar í fremri salnum.
Sýningin verður í aðalsal Svavarssafns til 15. janúar næstkomandi.