Landsbyggðirnar kalla

0
647
Mynd: Þorsteinn Roy Jóhannsson

Sjö landshlutasamtök á Íslandi hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021.
Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og tengiliði frá landshlutasamtökum sveitarfélaga á Austurlandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Vesturlandi, Reykjanesi og Suðurlandi.
Ljóst er að fyrirtæki í virðiskeðju ferðaþjónustunnar eru í miklum ólgusjó sem ekki sér fyrir endann á. Á næstu mánuðum er lykilatriði að halda fast um taumana, nýta sér þau úrræði sem í boði eru af hendi stjórnvalda ásamt því að nýta tímann til að efla nýsköpun, vöruþróun og stafræna ferla fyrirtækisins.
Ratsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem fyrirtækjaeigendur standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun verða unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta haft áhrif á þá efnisþætti sem teknir verða fyrir. Meðal efnisþátta sem verða í boði eru: nýsköpun og vöruþróun, markaðsmál og markhópar, sjálfbærni og ábyrg ferðaþjónusta, stafræn þróun og tæknibylting fyrirtækja, breyttir tímar og tækifærin – kaupákvörðunarhringurinn, draumur stofnenda – tilgangur og markmiðasetning, heimasíður – hvernig skarar síðan mín fram úr?, jákvæð sálfræði, breytingastjórnun, endurhugsaðu viðskiptamódelið, skapandi hugsun sem verkfæri til framfara, samkeppnishæfni og sérstöðugreining, svo dæmi séu tekin.
Ratsjáin mun hefjast með formlegum hætti í janúar 2021 og standa yfir í 16 vikur eða til 16.apríl. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020 og er umsóknar­eyðublað aðgengilegt á heimasíðu Íslenska ferðaklasans, http://www.icelandtourism.is. Þátttakendur frá öllum landshlutum munu hittast á tveggja vikna fresti á sameiginlegum vinnustofum á netinu þar sem kafað verður í kjarna þeirra verkfæra sem fyrir valinu verða. Á milli sameiginlegra vinnustofa verður haldinn svæðisbundinn heimafundur í umsjón landshlutanna sjálfra. Þar verður farið nánar yfir efnistök frá sameiginlegum fundi og unnið með sérstöðu hvers svæðis fyrir sig á þeirra forsendum.
Ratsjáin var fyrst keyrð í samstarfi Ferðaklasans og Nýsköpunarmiðstöðvar árið 2016 en með stuðningi frá Byggðaáætlun frá 2019 og nú með stuðningi landshlutasamtaka sveitarfélaga. Í ljósi breyttra tíma mun Ratsjáin 2021 miða að því að vera svæðisbundin en samtengd í senn og er því töluvert frábrugðin hefðbundna verk­efninu. Það sem þó tengir þau saman fyrir utan nafnið sjálft er hugmyndafræðin að baki en það allra mikilvægasta er að þátttakendur kynnist hver öðrum, geti miðlað þekkingu og reynslu sín á milli og myndi með sér samstarf og tengslanet sem þau búa að löngu eftir að verkefninu líkur. 1.

Nánari upplýsingar veita:
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdarstjóri Íslenska ferðaklasans, asta.kristin@icelandtourism.is
Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi RATA, svava@rata.is